Tónlist

D-A-D nýtir Íslandsferðina vel

Taka upp myndband.
Gamla glysrokksveitin hyggst gera myndband á Íslandi ásamt að spila á styrktartónleikum á Nasa.
Taka upp myndband. Gamla glysrokksveitin hyggst gera myndband á Íslandi ásamt að spila á styrktartónleikum á Nasa.

Danska rokksveitin D-A-D hyggst ekki sitja auðum höndum og eyða sínum tíma í einhverju vitleysu þegar þeir koma hingað til lands og spila á á Nasa. Þeir ætla sér að taka upp myndband við nýtt lag sveitarinnar og það staðfestir Finni Jóhannsson hjá True North fyrirtækinu sem mun aðstoða dönsku rokkarana við myndbandsgerðina.

D-A-D er einhver þekktasta rokkgrúppa Danmerkur þótt frægðarsól þeirra hafi nokkuð hnigið að undanförnu. Enda náði hún toppnum í kringum glysrokktímabilið með laginu I'm Sleeping my Day away. Ef nýjasta myndbandið verður eitthvað í líkingu við það vídeó gæti tökuliðið auðveldlega nýtt sér einhverjar af þeim hálfkláruðu glæsibyggingum sem nú standa auðar á höfuðborgarsvæðinu.

Tónleikar D-A-D eru liður í styrktarverkefninu Because we care en það felst meðal annars í því að safna peningum handa þeim Íslendingum í Danmörku sem urðu illa úti í efnhagshruninu. Sjóðurinn hefur þegar safnað átta milljónum og var þeim dreift til þeirra Íslendinga sem mest þurfa á þeim halda. Mikla athygli vakti þegar Fréttablaðið greindi frá því að íslenskir ellílifeyrisþegar í Danmörku hefðu fengið jólastyrk frá sjóðnum og gátu þannig haldið gleðileg jól. Tónleikar D-A-D verða þann 24. janúar og eru sem fyrr segir á Nasa.-fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×