Cleveland jók forskotið á Lakers með tólfta sigrinum í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. mars 2009 08:55 LeBron James var kátur með leikinn á móti Dallas. Mynd/GettyImages
Cleveland Cavaliers er komið með tveggja leikja forskot á Los Angeles Lakers eftir að liðið sett nýtt félagsmet með tólfta sigurleiknum í röð og Lakers-liðið tapaði fyrir Atlanta Hawks. Cleveland vann 28 stiga sigur á Dallas Mavericks, 102-74, og hefur þar með unnið 60 af 73 leikjum tímabilsins og 35 af 36 heimaleikjum. „Þetta er ótrúleg tilfinning. Við byggjum þetta á liðsheild og trausti. Við ætlum ekki að breyta neinu. Við ætlum að mæta og hafa gaman af hlutunum en um leið klára okkar verkefni á fagmannlegan hátt," sagði LeBron James eftir leikinn með hann var með 24 stig og 12 stoðsendingar í sigrinum. Dallas byrjaði vel og var 35-20 yfir í upphafi annars leikhluta en Cleveland var búið að minnka muninn í tvö stig fyrir leikhlé, 49-47, og vann síðan seinni hálfleikinn 55-25. Maurice Williams var með 22 stig fyrir Cleveland en Dirk Nowitzki var stigahæstur Dallas-manna með 20 stig. Los Angeles Lakers tapaði 76-86 fyrir Atlanta á útivelli en liðið var fyrir leikinn búið að vinna fimm leiki í röð og tryggja sér efsta sætið í Vesturdeildinni. Kobe Bryant glímdi við magakveisu og skoraði bara 17 stig þar sem hann hitti aðeins úr 7 af 19 skotum. Þetta þýddi að hann er bara búinn að skora samanlagt 31 stig í síðustu tveimur leikjum sem þykir fréttnæmt á þeim bænum. Mike Bibby skoraði 21 stig fyrir Atlanta og Zaza Pachulia var með 11 stig og 13 fráköst. New Orleans Hornets liðið hitti úr 32 af 33 vítaskotum sínum í 90-86 sigri liðsins á San Antonio Spurs. Chris Paul gulltryggði sigurinn með því að setja niður þrjú víti 7,1 sekúndum fyrir leikslok eftir að Spurs-menn höfðu brotið á honum í þriggja stiga skoti. „Við sýndum mikinn baráttuanda og hvað þetta lið getur gert ef allir spila af fullum krafti í 48 mínútur," sagði Chris Paul sem skoraði 26 stig. David West bætti við 23 stigum og 16 fráköstum og saman hittu þeir úr öllum 20 vítaskotum sínum. Tony Parker skoraði 20 stig fyrir San Antonio, Tim Duncan var með 19 stig og 15 fráköst og Manu Ginobili skoraði 17 stig. Paul Pierce var með 27 stig í 103-84 heimasigri Boston Celtics á Oklahoma City Thunder. Glen Davis var með 19 stig og 10 fráköst en Russell Westbrook var með 23 stig fyrir Thunder og Kevin Durant skoraði 21 stig. Toronto Raptors vann 134-129 sigur á Chicago Bulls í framlengingu. Chris Bosh var með 31 stig og 15 fráköst fyrir Toronto og Andrea Bargnani bætti við 28 stigum en þetta var fjórði sigur Toronto í röð. Ben Gordon var með 37 stig fyrir Bulls. Mike Miller var með 22 stig, 10 fráköst og 5 stoðsendingar í 108-99 sigri Minnesota Timberwolves á New Jersey Nets en liðið náði þar með að enda sjö leikja taphrinu sína. Vince Carter var með 36 stig í fjórða tapleik Nets-liðsins í röð. Tayshaun Prince var með 21 stig í 101-97 sigri Detroit Pistons á Philadelphia 76ers. Allen Iverson lék á ný með Detroit eftir sextán leikja fjarveru og skoraði 8 stig á 22 mínútum. Andre Iguodala var með 27 stig fyrir Philadelphia. Indiana Pacers vann 124-115 sigur á Washington Wizards þar sem Danny Granger skoraði 31 stig og nýliðinn Brandon Rush var með 29 stig og 10 fráköst. Caron Butler var atkvæðamestur hjá Washington með 31 stig og 13 fráköst. Það dugði ekki Phoenix Suns að Steve Nash var með 31 stig þegar liðið tapaði 118-126 fyrir Sacramento Kings. Jason Thompson var með 21 stig fyrir Sacramento og Spencer Hawes bætti við 20 stigum og 10 fráköstum. Eftir leikinn er Phoenix fjórum leikjum á eftir Dallas í baráttunni um áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina.
NBA Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Njarðvík - Valur | Geta Njarðvíkingar rétt skipið af? KR - Ármann | Halda KR-ingar sigurgöngunni áfram? Höttur - ÍR | Hörkuleikur fyrir Austan Grindavík - Stjarnan | Stórliðin þurfa sigur Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Sjá meira