Einvígi LeBron James og Kobe Bryant í beinni í kvöld 8. febrúar 2009 14:36 Einvígi Bryant og James í kvöld er beðið með mikilli eftirvæntingu NordicPhotos/GettyImages
Stöð 2 Sport verður með sannkallaðan risaleik úr NBA deildinni í beinni útsendingu klukkan 20:30 í kvöld þegar Cleveland tekur á móti LA Lakers. Hér eru á ferðinni tvö af bestu liðum deildarinnar sem hafa í sínum röðum líklega tvo bestu leikmenn deildarinnar - LeBron James og Kobe Bryant. Báðir leikmenn komust í fréttirnar í síðustu viku þegar þeir fóru hamförum á stærsta sviði körfuboltans, Madison Square Garden, heimavelli New York. Kobe Bryant skoraði 61 stig í sigri Lakers í New York og LeBron James skoraði 52 stig í sigri Cleveland á sama stað nokkrum dögum síðar. Cleveland hefur ekki tapað leik á heimavelli í allan vetur og hefur unnið 39 leiki og tapað aðeins 9. Cleveland hefur unnið alla 23 heimaleiki sína á leiktíðinni og hefur raunar unnið síðustu fjóra leiki sína þar gegn Lakers. Lakers hefur unnið 40 leiki og tapað 9 en liðið varð fyrir áfalli á dögunum þegar ljóst varð að miðherjinn Andrew Bynum gæti ekki spilað meira með liðinu á leiktíðinni vegna meiðsla. Leikurinn í kvöld er síðari viðureign liðanna í deildinni í vetur en þá fyrri vann Lakers liðið örugglega á heimavelli sínum þann 19. janúar, 105-88. Þetta er reyndar ekki eini stórleikurinn í NBA í kvöld því strax klukkan 18 eigast við Boston og San Antonio - meistaralið síðustu tveggja ára.
NBA Mest lesið Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM Fótbolti Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Sjá meira