Tónlist

Coldplay og Duffy líkleg til sigurs

Söngkonan Duffy hefur verið tilnefnd til fernra Brit-verðlauna, rétt eins og hljómsveitin Coldplay.
Söngkonan Duffy hefur verið tilnefnd til fernra Brit-verðlauna, rétt eins og hljómsveitin Coldplay.
Duffy og Coldplay fengu flestar tilnefningar til Brit-verðlaunanna sem verða afhent 18. febrúar í London. Fengu þær hvor um sig fjórar tilnefningar, þar á meðal fyrir bestu bresku plötuna árið 2008.

Coldplay, sem gaf út plötuna Viva La Vida or Death and All His Friends, hafði áður hlotið sjö tilnefningar til Grammy-verðlaunanna sem verða einnig afhent í næsta mánuði. Duffy gaf á síðasta ári út sína fyrstu plötu, Rockferry, sem var sú söluhæsta í Bretlandi.

Adele, Elbow og Scouting for Girls fengu þrjár tilnefningar hver á meðan Ting Tings, Radiohead, Girls Aloud og Estelle hlutu tvær.

Sömu fimm hljómsveitirnar utan Bretlandseyja voru tilnefndar sem besta alþjóðlega hljómsveitin og fyrir bestu plötuna, eða AC/DC, Fleet Foxes, The Killers, Kings of Leon og MGMT. Hljómsveitin Pet Shop Boys verður á athöfninni verðlaunuð fyrir framlag sitt til tónlistarheimsins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×