Lamar Odom verður áfram hjá Lakers eftir allt saman Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. júlí 2009 14:30 Lamar Odom var mikilvægur hlekkur í meistaraliði Lakers. Mynd/AFP
Það leit allt út fyrir að Lamar Odom væri að yfirgefa meistaralið Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta en af því varð ekki því odom náði samkomulagi við Lakers um að spila áfram með liðinu. Það er talað um að hann hafi gert þriggja ára samning með möguleika á fjórða árinu. Mikið var skrifað um að Miami Heat væri að daðra við Odom sem var ekki sáttur við fyrstu samningtilboð Lakers-liðsins. Dwyane Wade kom meira að segja opinberlega fram og bað odom um að koma til sín í Miami. Odom er búinn að spila tíu tímabil í NBA-deildinni og var með 12,3 stig og 9.1 frákast að meðaltali í leik í úrslitakeppninni í ár. Hann skilaði mikilvægu hlutverki sem sjötti maður og flestir voru á því að brotthvarf hans myndi veikja Lakers-liðið mikið. Nú er ljóst að Kobe Bryant, Pau Gasol, Derek Fisher og Odom verða allir með meisturunum á næsta tímabili auk þess að Lakers er búið að fá til sín Ron Artest. Þá ætti Andrew Bynum loksins að vera laus við meiðslin sem hafa hrjáð hann í tvö tímabil. Með þessu er ljóst að meistararnir verða sigurstranglegir á næsta tímabili.
NBA Mest lesið Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Strand Larsen skoraði tvö þegar Norðmenn unnu Svía þægilega Fótbolti Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Sektaður um átta milljónir fyrir karlrembu Sport Fleiri fréttir Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Sjá meira