Tónlist

Þriggja stjörnu diskórokk

Þriðja breiðskífa Franz Ferdinand, Tonight, kemur út á mánudaginn.
Þriðja breiðskífa Franz Ferdinand, Tonight, kemur út á mánudaginn.
Þriðja breiðskífa Franz Ferdinand, Tonight, kemur út á mánudaginn. Margir bíða hennar með mikilli eftirvæntingu enda sló sveitin rækilega í gegn fyrir fimm árum með sinni fyrstu plötu.

Hljómsveitin er Íslendingum að góðu kunn því tvívegis hefur hún spilað hér á landi, fyrst í Kaplakrika árið 2005 og síðan á Nasa tveimur árum síðar.

Tonight fær þrjár stjörnur af fimm mögulegum í bresku tónlistartímaritunum Q og Uncut og einnig þrjár stjörnur í dagblöðunum The Guardian og Daily Telegraph. Flestir gagnrýnendur eru sammála um að platan hafi að geyma slatta af hressilegu diskórokki en helsti gallinn sé hversu lítið hljómsveitin hafi þróast síðan hún kom fyrst fram á sjónarsviðið og að lögin á plötunni séu of lík hvert öðru. „Hún hljómar ekki alltaf nógu vel en ætti samt að falla í kramið þar sem henni er ætlað að hljóma: af fullum krafti á indí-diskóstöðum," segir í dómi Daily Telegraph.

Rúmt þrjú og hálft ár er liðið síðan síðasta plata Franz Ferdinand, You Could Have It So Much Better, kom út. „Síðasta plata hljómaði eins og unglingur að stunda kynlíf. Þessi er öruggari og hentar dansgólfinu aðeins betur," sagði söngvarinn Alex Kapranos um Tonight.

Hljómsveitin ætlar í tónleikaferð um Evrópu til að fylgja gripnum eftir og hefst hún í Dublin 1. mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×