NBA í nótt: Boston vann án Garnett Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. febrúar 2009 09:07 Paul Pierce í leiknum í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Boston vann í nótt sigur á Phoenix, 128-108, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þó svo að Kevin Garnett hafi verið fjarverandi vegna meiðsla. Amare Stoudemire lék heldur ekki með Phoenix þar sem hann verður frá næstu átta vikurnar að minnsta kosti eftir að hafa gengist undir uppskurð á auga. Rajon Rondo bætti persónulegt met er hann skoraði 32 stig en hann gaf þar að auki tíu stoðsendingar í leiknum. Ray Allen var með 31 stig og Paul Pierce 26. Jason Richardson skoraði 21 stig fyrir Phoenix en þetta var fyrsta tap liðsins síðan að Alvin Gentry tók við þjálfun þess. Hann hafði unnið sína fyrstu þrjá leiki. Steve Nash var með nítján stig og ellefu stoðsendingar. Cleveland vann Detroit, 99-78. Delonte West skoraði 25 stig og LeBron James bætti við 20 fyrir Cleveland. Toronto vann New York, 111-100. Andrea Bargnani var með 28 stig og tíu fráköst. Indiana vann Chicago, 98-91. Troy Murphy var með 27 stig en þrátt fyrir sigurinn náði Indiana ekki að skora utan af velli á ellefu mínútna kafla í síðari hálfleik. Houston vann Charlotte, 99-78. Ron Artest skoraði 26 stig og Yao Ming nítján fyrir Houston. Milwaukee vann Denver, 120-117. Charlie Villanueva skoraði 36 stig í leiknum, þar af níu í fjórða leikhluta. Orlando vann Miami, 122-99. Dwight Howard skoraði 32 stig og tók sautján fráköst í leiknum. Dwyane Wade fór á kostum í liði Miami og skoraði 50 stig en það dugði ekki til. Portland vann LA Clippers, 116-87. LaMarcus Aldridge skoraði 28 stig fyrir Portland og Brandon Roy 20. Steve Blake jafnaði met er hann gaf fjórtán stoðsendingar í einum og sama leikhlutanum (þeim fyrsta) en alls var hann með sautján stoðsendingar. LA Lakers vann Minnesota, 111-108. Kobe Bryant var með 28 stig fyrir Lakers.
NBA Mest lesið HM-minning: Leyfði herbergisfélaganum að vera hetjan Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Er hægt að stöðva Víkingana? Sport Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Banna taktísku markvarðarleikhléin á HM Fótbolti Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Gerir lítið úr „slagsmálunum“ hjá Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Sjá meira