Ólafur: Bestu nýliðarnir síðan ég, Dagur og Patti Henry Birgir Gunnarsson skrifar 29. október 2009 22:10 Ólafur og hinn ungi Aron Pálmarsson ræða málin í kvöld. Mynd/Daníel
Ólafur Stefánsson spilaði sinn fyrsta leik með íslenska landsliðinu síðan á ÓL í Peking í kvöld. Var endurkoma hans vel fagnað og sannkölluð gleðitíðindi að Ólafur gefi aftur kost á sér. „Það er mjög fínt að vera kominn aftur og þetta var bara gaman. Ég er léttur í góðu formi. Vel hvíldur frá þessum gaurum og þeir hvíldir á mér. Það var báðum til góðs. Ég þurfti að koma mjúklega aftur inn í hópinn og ekki vera með nein læti. Ég er búinn að vera mjög spakur," sagði Ólafur og glotti. „Þetta var góð ákvörðun að koma til baka og það er líka æðislegt að koma heim. Svo þegar maður er í formi er gaman að berjast fyrir sinni stöðu í liðinu," sagði Ólafur sem er ánægður með strákana í liðinu. „Mér líst vel á þessa nýliða. Þetta eru bestu þremenningar sem hafa komið í landsliðið síðan ég, Dagur og Patti," sagði Ólafur léttur og brosti. Hann var þar væntanlega að tala um þá Aron Pálmarsson, Sigurberg Sveinsson og Ólaf Guðmundsson. „Þetta eru mjög flottir strákar. Það er heiður að fá að spila með þeim. Mér fannst gaman að ná að spila með Sigga Sveins og svona og núna er ég kominn hinum megin við borðið. Vonandi get ég kennt þeim eitthvað sem þeir taka svo með sér," sagði Ólafur Stefánsson.
Íslenski handboltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira