Segist ekki halda verslunarkeðjum Baugs til eilífðar 12. febrúar 2009 12:11
Tony Lomas, stjórnandi hjá PricewaterhouseCoopers (PwC) segir að það sé ekki ætlunin að halda verslunarkeðjum Baugs til eilífðar. Þær verði seldar um leið og markaðsaðstæður batni enda vilji kröfuhafar fá fé í hendur fremur en eignarhluti. Þetta kemur fram í breska blaðinu The Guardian sem segir að þessi ummæli séu hin fyrstu sem komi fram opinberlega um að sala á verslunarkeðjunum standi fyrir dyrum í framtíðinni. Sem kunnugt er mun PwC stjórna Baugi í Bretlandi meðan á greiðslustöðvun félagsin stendur. "Kröfuhafar eru á höttunum eftir peningum en við viljum bíða betri tíma en nú eru til að koma eignunum í verð," segir Lomas. "Við verðum að selja þessar eignir, greiðslustöðvunin mun ekki vara að eilífu." Fram hefur komið hjá skilanefnd Landsbankans að þar er vilji fyrir því að bíða lengi, það er meir en ár eða tvö, áður en eignir Baugs verða boðnar til sölu.
Mest lesið Gengu langt í að vinna að lausn þótt bíllinn væri ekki í ábyrgð Neytendur „Fjárfestar eru bara venjulegt fólk“ Atvinnulíf Þrálát verðbólga og hægari vöxtur geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið Viðskipti innlent Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Viðskipti erlent Hrönn, Viktor og Þórdís til Varðar Viðskipti innlent Ísak Einar til Samtaka atvinnulífsins Viðskipti innlent Hafa rúmir opnunartímar áhrif á verðlag? Neytendur „Við eigum margar rómantískar stundir í vinnunni“ Atvinnulíf Bein útsending: Haustráðstefna Stjórnvísi – Snjöll framtíð Viðskipti innlent Telur vaxtahækkanir viðskiptabankanna brattar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira