Árni Már stóð sig vel á NCAA-háskólamótinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. mars 2009 10:45 Árni Már Árnason. Mynd/Heimasíða Old Dominion
Árni Már Árnason stóð sig vel á NCAA-háskólamótinu í sundi um síðustu helgi en þetta er meistaramót allra háskóla í Bandaríkjunum og það mikill heiður að öðlast keppnisrétt á þessu móti. Árni Már keppti fyrir Old Dominion skólann og hefur margbætt skólametin í sínum sundum í vetur. Árni Már tryggði sér þátttökurétt í úrslitamótinu með því að vinna þrjár greinar í CAA-skólakeppninni en hann komst inn í 50 metra skriðsundi sem og 100 og 200 metra bringusundum. Hann varð fyrsti nemandi Old Dominion til að komast svona langt síðan að skólinn komst upp í 1. deildina. Á lokamótinu um helgina varð Árni í 21. sæti í 200 yarda bringusundi á tímanum 1:56,54 mínútum en hann átti best áður 1:57,61 mínútur en báðir þessir tímar voru skólamet. Árni varð einnig í 25. sæti í 100 metra bringu og í 42. sæti í 50 metra skriðsundi. Árni á nú skólametið í öllum þessum greinum auk þess að hann tók þátt í að setja skólamet í fjórum boðsundum. Árni Már keppir fyrir ÍRB hérna heima en hann kemur úr Mosfellsbænum. Árni gat ekki tekið þátt í Íslandsmeistaramótinu í sundi þar sem hann var upptekinn við æfingar og keppni úti.
Innlendar Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Fótbolti Fleiri fréttir Ásaka Barcelona um að hafa borgað varaforseta spænskra dómarasamtaka Skellur fyrir Arsenal og Grikkland Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Fram - Afturelding | Hörkuleikur í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Skoraði sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni Danmörk - Portúgal 2-4 | Portúgal vann þrátt fyrir fjarveru Ronaldo Írland - Austurríki 2-2 | Svekkjandi jafntefli fyrir Heimi Verðlaunafé fyrir karla og konur í tennis verði það sama Enn er penninn á lofti í Laugardal Hættur við að hætta við að hætta Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Heimspekingurinn Winston jós úr viskubrunni sínum Jesus sveik lærisveininn Fékk gráðuna fyrir viku og lék í djörfu myndbandi Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Yfirmenn Heimis teknir á teppið Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Dagskráin í dag: Enginn Ronaldo í Danmörku Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Sjá meira