Haukar unnu örugglega unglingaliðaslaginn við Val Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. desember 2009 15:28 Sigurbergur Sveinsson skoraði 8 mörk úr 10 skotum í dag.
Haukar tryggðu sér sæti í úrslitaleik karla í Flugfélags Íslands Deildarbikarnum með 29-22 sigri á Val á Strandgötu. Bæðu liðin hvíldu eldri leikmenn sína í leiknum og ungir strákar liðanna voru í aðalhlutverkum í leiknum. Haukar tóku fljótlega frumkvæðið í leiknum undir forustu Sigurbergs Sveinssonar sem skoraði sex af fyrstu tíu mörkum liðsins. Haukar komust í 9-6 og 13-10 og voru 15-12 yfir í hálfleik. Haukar byrjuðu seinni hálfleikinn vel og náðu fljótlega fimm marka forskoti, 18-13, en í kjölfarið skoruðu liðin ekki í langan tíma. Sigurbergur braut hinsvegar múrinn og kom Haukum sex mörkum yfir í fyrsta sinn, 19-13, og sigur Hauka var ekki í mikilli hættu eftir það. Valsmenn opinberuðu reynsluleysið sitt í seinni hálfleik með mýmörgum mistökum og skoruðu sem dæmi aðeins tvö mörk á fyrstu fimmtán mínútum í hálfleiknum. Haukavörnin og Aron Rafn Eðvarðsson voru líka í miklu stuði á þessum kafla þar sem úrslit leiksins réðust. Haukar eru því komnir í úrslitaleikinn í deildarbikarnum þriðja árið í röð en þeir hafa tapað fyrir Fram síðustu tvö ár. Nú mæta þeir annaðhvort FH eða Akureyri sem mætast í hinum undanúrslitaleiknum á eftir.Haukar-Valur 29-22 (15-12)Mörk Hauka: Sigurbergur Sveinsson 8, Þórður Rafn Guðmundsson 5, Björgvin Þór Hólmgeirsson 5, Stefán Rafn Sigurmansson 2, Guðmundur Árni Ólafsson 2, Jóhann Ingi Jónsson 2, Einar Pétur Pétursson 2, Elías Már Halldórsson 1, Pétur Pálsson 1, Sigurður Guðjónsson 1.Mörk Vals: Árni Alexander Baldvinsson 5, Atli Már Báruson 5, Fannar Þór Friðgeirsson 4, Sveinn Aron Sveinsson 3, Arnar Guðmundsson 2, Gunnar Harðarson, Gunnar Ingi Jóhannsson 1, Orri Freyr Gíslason 1.
Íslenski handboltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira