Skuldir sem þarf að greiða 24. júní 2010 06:00 Í Fréttablaðinu birtust tvær greinar þann 22. júní síðastliðinn. Annars vegar var um að ræða grein eftir Einar Huga Bjarnason og Björgvin Halldór Björnsson og hins vegar eftir einn lífsreyndasta þingmann þjóðarinnar, Kristin H. Gunnarson. Það er óhætt að segja að þar hafi skipst í tvö horn varðandi dóm Hæstaréttar þar sem lögmennirnir túlkuðu dóminn á þann hátt að hann væri skýr og vaxtakjörin sem um var samið skulu vera sú viðmiðun sem reikna skuli með. Þessi afstaða lögmannanna er rétt og þá ef bæði er litið til lögfræðinnar og fjármálafræðinnar en í þessum samningum er samið um breytilega LIBOR vexti í viðkomandi myntum auk vaxtaálags sem fjármálastofnunin ákvarðaði og miðaði þá, þegar samið var, við þá áhættu sem í bréfinu fólst og efni þess fólst miðað við mat á þeim tíma sem lánið var veitt, skuldabréfið útgefið og keypt af þessum aðilum. Á þessum tíma, sem lánin voru tekin, gat vel hugsast að fjármálastofnanirnar reiknuðu með að krónan myndi styrkjast. Þetta var áhætta sem fjármálastofnanirnar tóku, ekki almenningur. Nú hefur hins vegar komið í ljóst að flestar ef ekki allar fjármálastofnanirnar, sbr. rannsóknarskýrslu Alþingis, tóku stöðu gegn krónunni og véluðu lífeyrissjóðina með að taka stöðu með krónunni sem er líklega ein mesta skerðing sem lífeyrisþegar hafa orðið fyrir í áratugi. Bankarnir tóku því stöðu gegn viðskiptavinum sínum og hluthöfum og verða því stjórnir lífeyrissjóðanna að taka sig á og fara í tilsvarandi málaferli til að heimta leiðréttingu á því sem olli skerðingu lífeyrisréttinda landsmanna allra til langs tíma. Vandinn sem felst í grein Kristins H. Gunnarssonar, með fullri virðingu fyrir hans þætti á þingi um árabil, er mun dýpri en sá sem þar kemur fram. Í grunninn varpar greinin fram villu sem hefur lengi verið við lýði og varðar það að verðtrygging eigi að verða ríkjandi á Íslandi um ókomin ár og ef einn fær sanngjarna úrlausn fyrir dómi skal slíkri lögmætri leiðréttingu dreift á alla hina sem ekki eiga slíkt skilið. Hér skiptir miklu að verðtrygging veldur því að fjármálastofnanir og lífeyrissjóðir verða værukærir og það hefur sýnt sig í gegnum áratugina að þrátt fyrir stærð lífeyrissjóðina hafa réttindin verið skert þrátt fyrir nánast því áhættulausa ávöxtun. Hafa þeir aldrei átt að getað tapað nema með þátttöku í lélegum fjárfestingum eins og í bankakerfinu og með því að taka blindandi stöðu með krónunni þegar viðsemjendur þeirra, bankar sem þeir áttu sjálfir, véluðu þá í þessa gjörninga. Það sem veldur gremju almennings er að lífeyrissjóðirnir virðast ekki ætla að sækja réttindi lífeyrisþega á hendur bönkum, stjórnendum þeirra eða endurskoðendum. Hverju sætir? Það sem 68 kynslóð Kristins H. Gunnarssonar verður að gera sér grein fyrir, kynslóð sem fékk mikið „gefins" á verðbólguárunum, er að tími kæruleysislegs hjals um réttindi og skyldur sem eiga sér ekki stoð í lögum er liðinn. Hér er verið að tala um mun dýpri mál og varða þau réttindi, skyldur og eðlileg viðskipti. Á næstu misserum tekur við ný kynslóð á Alþingi sem mun ætlast til þess að Ísland verði alþjóðlegra og sterkara í alla staði. Vonandi að þingmenn landsins í dag hugi strax að breyttri stefnu í þessu efni en þannig eiga þeir einhvern möguleika á að fá sæti aftur á Alþingi Íslendinga. Það að rita greinar sem fela í sér vanþekkingu og takmarkaða sýn eru aðeins til þess að afvegaleiða umræðu sem er þegar komin á braut réttlætis og sanngirnis. Sem betur fer eru aðilar sem þessu halda fram fyrrverandi þingmenn. Einnig skal áréttað að almenningur á nú að slá skjaldborg um íslenska dómskerfið sem hefur nú aldeilis sannað sig sem sterkasta stoðin í stjórnkerfi Íslands. Sorglegt er að sjá viðbrögð seðlabankastjóra sem skóp það kerfi sem hrundi og stendur nú við hlið þeim sem fóru gegn almenningi og unnu gegn hagkerfinu, kerfi sem hann hannaði og ýtti úr vör sjálfur. Rétt væri að hann og margir aðrir gluggi í skýrslur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá árunum 1999 og 2001 til að rifja upp það sem löggjafinn þá raunverulega gerði til varnar heimilum og fyrirtækjum. Von greinarhöfundar er að almenningur standi saman um það sem rétt er í þessu efni svo réttmætir aðilar verði sóttir til saka og látnir gjalda gjörða sinna bæði í starfi og gagnvart lögum landsins. Með lögum skal land vort byggja og með ólögum eyða. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson Skoðun Skoðun Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar