Íslenski boltinn

Guðjón Skúlason: Ég er hrikalega ánægður með þetta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur.
Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur. Mynd/Vilhelm
Guðjón Skúlason stýrði Keflvíkingum til glæsilegs 20 stiga sigurs á Njarðvíkingum í átta liða úrslitum Subwaybikars karla í kvöld á móti hans gamla þjálfara Sigurði Ingimundarsyni en Sigurður þjálfar nú Njarðvík.

„Þetta var í rauninni aldrei í hættu. Við náðum alveg svakalegum spretti á móti þeim í fyrri hálfleik. Við vorum að spila ótrúlega góða vörn og vorum síðan skynsamir í sókninni. Við litum síðan aldrei til baka eftir það og gáfum ekkert eftir," sagði Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur í viðtali við Sporttv.is eftir leikinn.

„Við spiluðum alveg svakalega góða vörn og náum að halda þeim 73 stigum. Við vorum mjög einbeittir, gerðum það við áttum að gera í vörninni og spiluðum síðan skynsamlega í sókninni. Við skorum 50 stig á þá í fyrri hálfleik sem er eitthvað sem þeir hafa ekki verið að fá á sig í einum hálfleik í vetur. Ég er hrikalega ánægður með þetta," sagði Guðjón.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×