Hannar leikmyndina í Rocky Horror 19. ágúst 2010 08:15 myndlistarmaðurinn í leikhúsið Pétur Gautur myndlistarmaður er í rauninni lærður leikmyndahönnuður og hannar leikmyndina í Rocky Horror. Fréttablaðið/e.ól „
Ég vann í Þjóðleikhúsinu alla mína skólagöngu og leikmyndahönnun var í rauninni það sem ég ætlaði alltaf að gera. Svo tók myndlistin völdin og þetta fór á hilluna í nokkur ár," segir Pétur Gautur myndlistarmaður en hann sér um að hanna leikmyndina í Rocky Horror söngleiknum sem frumsýndur verður á Akureyri þann 10. spetember, Pétur er nú betur þekktur fyrir myndlistina en leikmyndagerð en hann segist í rauninni hafa byrjað í leikhúsinu. „Ég ákvað að fara í leikmyndahönnun þegar ég var búin að læra myndlist í Danmörku og komst meira að segja inn í Konunglega leiklistarskólann þar," segir Pétur en hann fékk hjálp frá Þjóðleikhúsinu hér heima, þar sem hann var að vinna, við að komast inn í þennan fræga skóla. „Ég hef alltaf verið viðloðandi leikhús," segir Pétur Gautur en það eru orðin nokkur ár síðan hann fékkst við leikhús síðast og hann sér ekki eftir að hafa tekið þessa sýningu að sér. „Ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni enda ekki á hverjum degi sem maður fær tækifæri til að blanda saman leikriti og rokktónleikum," segir Pétur Gautur en hann hefur fengið til liðs við sig ljósahönnuði sem aðstoða hann í að gera sýninguna sem flottasta. „Þetta verður rosasýning. Ég ætla ekki að gefa of mikið upp um hvernig leikmyndin muni líta út. Verkið Rocky Horror er svo frægt og allir með ákveðnar hugmyndir um hvernig allt á að líta út." segir Pétur en hann er fullviss um að enginn verði fyrir vonbrigðum með þessa uppfærslu á söngleiknum fræga. -áp
Lífið Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira