NBA: Orlando með þriggja stiga skotsýningu í sigri á Dallas Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. apríl 2010 11:00 Dwight Howard treður hér boltanum í körfuna í nótt. Mynd/AP
Orlando Magic er í góðum gír þessa dagana í NBA-deildinni í körfubolta en liðið vann öruggan 97-82 útisigur á Dallas Mavericks í nótt. Aðeins tveir leikir fóru fram í deildinni en Denver stöðvaði sigurgöngu Portland Trail Blazers í hinum leiknum. Dwight Howard var með 17 stig, 20 fráköst og 5 varin skot fyrir Orlando Magic en það var þó þriggja stiga skotnýting liðsins sem gerði út um leikinn. Leikmenn Orlando hittu úr 14 af 24 skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna. Mickael Pietrus skoraði 24 stig og hitti úr öllum sex þriggja stiga skotum sínum. Vince Carter var með 19 stig en þetta var 14. sigur Orlando í síðustu 16 leikjum. Dirk Nowitzki skoraði 24 stig fyrir Dallas sem hafði unnið þrjá leiki í röð fyrir leikinn í nótt en þeir Jason Terry og J.J. Barea voru síðan báðir með 16 stig. Carmelo Anthony skoraði 13 af 25 stigum sínum í fjórða leikhlutanum þegar Denver Nuggets vann 109-92 heimasigur á Portland Trail Blazers. Nene skoraði 22 stig fyrir Denver og Chauncey Billups var með 21 stig en þetta var aðeins annar sigur Denver-liðsins í síðustu sjö leikjum. Andre Miller skoraði 24 stig fyrir Portland en liðið var búið að vinna fjórða síðustu leiki sína fyrir þennan leik. Martell Webster (17 stig) og LaMarcus Aldridge (16 stig) komu honum næstir í stigaskori liðsins. Úrslitin í NBA-deildinni í nótt: Dallas Mavericks-Orlando Magic 82-97 Denver Nuggets-Portland Trail Blazers 109-92
NBA Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Körfubolti Stóru liðin á eftir Kroupi Enski boltinn HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Sjá meira