Flottir taktar en full einsleitir textar Trausti Júlíusson skrifar 6. maí 2010 11:00 Besta lag Hesthússins er Sjúkur, sem er algjört dúndur.
Tónlist *** Hesthúsið Diddi Fel Diddi Fel er búinn að vera í framvarðasveit íslenska rappsins í nokkur ár. Hann er einn af meðlimum ofursveitarinnar Forgotten Lores og hefur verið iðinn við kolann utan hennar líka. Diddi gaf út plötuna Hvernig rúllar þú? ásamt G. Maris árið 2007 hjá vefútgáfunni Coxbutter, en Hesthúsið er hans fyrsta sólóplata. Introbeats, félagi Didda úr F.L., á flesta takta á plötunni, en Diddi sér sjálfur um taktana í þremur lögum, Fonetik Simbol í fjórum og BRR í einu. Hesthúsið er hálfgerð þemaplata. Nafnið vísar í graðfola og textarnir fjalla flestir um djammið og stelpurnar. Diddi er flottur rappari með flæðið og tilþrifin í lagi og það er fullt af feitum töktum á plötunni, en maður væri alveg til í aðeins meira kjöt á beinin textalega séð. Það má alveg hafa gaman af þessum enskuskotnu djammtextum, en þeir halda ekki uppi heilli plötu. Viðlagið úr Let's go! er nokkuð nett: „Ég á "etta show/þó þú shake-ir soldið rassinn baby ert'ekki ho /Ég á 'etta flow/og ef þú ert a fíla Fel komdu Baby lets go". Það eru ekki eintómir djammtextar á plötunni, en heildin er of veik. Eins og áður segir eru nokkur mjög flott lög á Hesthúsinu. Ég nefni sem dæmi titillagið, Jordan rúls, Gefðu mér pöff, Yfirmenn, Let's go! og besta lag plötunnar Sjúkur sem er algjört dúndur. Á heildina litið má segja að þetta sé þokkalegasta plata. Vel þegin á meðan við bíðum eftir næstu Forgotten Lores plötu. Niðurstaða: Það er fullt af flottum töktum á Hesthúsinu og Diddi á fína spretti, en textalega mætti vera meira í hana lagt. Myndbandið við Sjúkur á YouTube, þar sem Steindi Jr. fer meðal annars á kostum.
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Bíó og sjónvarp Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Lífið samstarf Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Blood of Dawnwalker: Tíminn er þinn helsti óvinur Leikjavísir Fleiri fréttir Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Sjá meira