Ódýrt og óspennandi Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 25. nóvember 2010 00:01 Djammararnir ákveða að halda kyrru fyrir í íbúðinni um sinn og fylgjast með atferli og aðferðum geimveranna þar til þau treysta sér til að leggja á flótta.
Bíó Skyline Leikstjórar: Colin Strause, Greg Strause. Aðalhlutverk: Eric Balfour, Scottie Thompson, Brittany Daniel, Crystal Reed, Donald Faison, David Zayas. Hópur fólks vaknar í þakíbúð skýjakljúfs um miðja nótt eftir að hafa fengið sér í aðra tána. Risastór geimskip svífa yfir Los Angeles-borg og svo virðist sem hinir framandi gestir hafi gangsett eins konar „mann-ryksugu" sem sogar fólk upp í geimskipin. Djammararnir ákveða því að halda kyrru fyrir í íbúðinni um sinn og fylgjast með atferli og aðferðum geimveranna þar til þau treysta sér til að leggja á flótta. Þessi söguflétta er að sjálfsögðu afskaplega bjánaleg en gæti eflaust virkað ef myndin tæki sig ekki svona alvarlega. Vísindaskáldskapur verður annað hvort að skapa trúverðugar aðstæður (eins langt og trúverðugleikinn nær) eða halda sig í létt-flippuðum gír. Leikaralið Skyline er af ódýrustu sort og brellurnar upp og ofan. Þetta gæti ég fyrirgefið ef persónurnar væru áhugaverðar, eða allavega fyndnar. Það eru þær ekki. Engum stekkur bros. Ekki leikurunum. Ekki leikstjórunum. Ekki áhorfendum. Þegar ég hélt að myndinni væri lokið stóð ég pirraður á fætur, renndi upp yfirhöfninni og hugsaði: „Þetta hefði varla getað verið verra". En myndinni var ekki lokið. Ónei. Fimm sprenghlægilegar mínútur voru eftir, og ég hló svo sannarlega ekki „með þeim". Þegar þær voru á enda stóð ég aftur á fætur og hugsaði: „Merkilegt. Þeim tókst að gera þetta enn verra." Niðurstaða: Ein stjarna fyrir Skyline og önnur fyrir skemmtilegu handþurrkuna á snyrtingu Laugarásbíós. Hún er alltaf jafn hress.
Mest lesið Stjörnulífið: „Ég elska sjálfan mig“ Lífið Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Lífið Setur ávallt á sig varalit á kjördag en verður ekki með hann í kvöld Lífið Stjörnuleikarar sendu yfirlýstum aðdáanda kveðju Lífið Alma himinlifandi með soninn sem lofar 45 prósenta fylgi næst Lífið „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Tónlist Sigurræða Ásdísar: Ætlaði allt að koll um keyra þegar Ásdís mætti Lífið Búlgaría fór fram úr Ísrael á síðustu stundu og sigraði Eurovision Lífið Fréttatía vikunnar: Jake Paul, Rúmeni og Bakgarðshlaup Lífið „Við flytjum aldrei héðan“ Lífið Fleiri fréttir Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Klámhundarnir engu gleymt Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Hvað er það versta sem þú hefur gert? Allir komust lifandi út – nema Beethoven Hugljúft geimævintýri líður fyrir þreytandi þúsaldarhúmor Sjá meira