Kani í völundarhúsi Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 16. október 2010 06:00 Clooney er góður í American.
Bíó **** The American Leikstjóri: Anton Corbijn. Aðalhlutverk: George Clooney, Thekla Reuten, Violante Placido, Paolo Bonacelli. George Clooney kallar sig Jack og er staddur í Svíþjóð á fyrstu mínútum kvikmyndarinnar The American. Þar berst hann við byssuglaða snáða í snjónum og hefur betur. Skömmu síðar gengur hann undir nafninu Edward í smáþorpi á Ítalíu þar sem örlög hans munu ráðast. Í fyrstu dregst áhorfandinn inn í sögufléttuna en þegar líða tekur á myndina kemur í ljós að hún skiptir ekki máli. Hver mun drepa hvern og af hverju? Hverjir eru sannir bandamenn Ameríkanans og hverjir munu stinga hann í bakið? Edward treystir engum vegna þess að hann er í helvíti. Vingjarnlegur prestur reynir að benda honum á það en líklega er það orðið of seint. Aftanverð eyrun á George Clooney eru í miklu aðalhlutverki. Við sjáum aftan á hann þar sem hann gengur hægum en ákveðnum skrefum um þröng og tómleg stræti þorpsins, fram og til baka. Það er líkt og hann sé staddur í völundarhúsi án útgönguleiðar. Það eru engar sprengingar í myndinni. Hún býður áhorfandanum upp á merkilegri og betri hluti en það. Á endanum stoppar sýningarvélin en kvikmyndin heldur áfram. Tveir sólarhringar hafa liðið og ég er ennþá að horfa á The American. Niðurstaða: Falleg og djörf mynd sem tekur tíma að melta. Þeir sem vilja hasar verða vonsviknir.
Mest lesið Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Lífið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Tónlist Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Lífið Fleiri fréttir Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Sjá meira