Ríkisstjórn áfölskum forsendum 24. september 2010 06:00 Ég hafði óbilandi trú á þessari ríkisstjórn þegar hún tók við völdum. „Mér blæðir það í augum sem Íslendingi" hvað aðgerðarleysi hennar í málefnum heimilanna hefur verið algjört. Þau komust til valda algjörlega á fölskum forsendum. Ég er svo yfir mig gáttaður á getuleysi þessarar ríkisstjórnar, slæm var stjórnin sem var fyrir en þessi stjórn er að slá öll met í verkleysi og vankunnáttu. Til hvers heldur þetta fólk að það sé kosið á þing? Þetta fólk er búið að hafa öll tækifæri í heiminum frá því þau tóku við til þess að taka á þessum málum. Ef þessi ríkisstjórn hefði tekið strax á lánamálum heimilanna t.d. með 20-30% leiðréttingu erlendra lána hefði staðan verið allt önnur í dag. Ég er viss um að 99% fólksins í landinu hefði sætt sig við það, þá hefðu þeir átt að frysta vísitöluna í byrjun árs 2008. Hvernig dirfast þau að halda því fram að við höfum ekki efni á þessu, því staðreyndin er sú að leið ríkisstjórnarinnar verður mikið dýrari þegar upp verður staðið. Mig langar að nefna eitt dæmi sem ég þekki um fólk sem keypti íbúð á 30 millj. fyrir kreppu. Þau áttu eigin sparnað upp á 12 millj. og tóku 18 millj. að láni hjá Frjálsa fjárfestingabankanum. Núna, eftir nýjustu æfingar Árna Páls og Steingríms, er sparnaður þeirra upp á 12 millj. farinn út um gluggann, eftirstöðvar af láninu eru rúmlega 30 millj. og íbúðin kannski að verðmæti 20 millj. Ráðherrar í ríkisstjórninni kalla aðra stjórnmálamenn vitleysinga. Margur telur mig sig, ég segi burt með vitleysinga-ríkisstjórnina, ykkar tími er farinn. Steingrímur, þú staglast sífellt á því hvað þetta er erfitt, það er af því að þú kannt bara að blaðra en ekkert til verka! Getur verið að þessi afglöp ríkisstjórnarinnar í málefnum heimilanna þurfi að fara fyrir landsdóm? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun Mest lesið Mikilvæg uppbygging nýs golfvallar í landi Hafnarfjarðar Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Frá auðlindaforskoti til þekkingarforskots Sigurður Atli Jónsson Skoðun Ekki bara barnvænt sveitarfélag í kosningabaráttu Leyla Ósk Jónsdóttir Skoðun Af hverju skiptum við stundum um tungumál þegar við þurfum þess ekki? Valerio Gargiulo Skoðun Skugginn sem eltir: Þegar einelti fullorðinna fær að þrífast Ólafur Björn Guðmundsson Skoðun Hreinskilni í leikskólamálum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Sjávarútvegur, fæðuöryggi og þróun heimsmála Þollý Rósmundsdóttir Skoðun Frelsi foreldra eða forsjárhyggja ríkisins? Bergþór Ólason Skoðun Óvissa í aðfangaöflun landbúnaðar Erna Bjarnadóttir Skoðun Amma mætti á þing kennara Meyvant Þórólfsson Skoðun Skoðun Skoðun Fagmennska og valddreifing í þágu íbúa Hveragerðis Lárus Jónsson skrifar Skoðun Lýðræðislegur fasisti í Evrópu skrifar Skoðun Hvar er næsti háskóli? Sjúkrahús? Alþjóðaflugvöllur? Unnur Pétursdóttir skrifar Skoðun Frelsi foreldra eða forsjárhyggja ríkisins? Bergþór Ólason skrifar Skoðun Kynferðisofbeldi gegn börnum – við þurfum að gera betur Sigurþóra Bergsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg uppbygging nýs golfvallar í landi Hafnarfjarðar Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Frí tómstund fyrir þitt barn? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Í skólanum er skemmtilegt að vera - eða hvað? Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju skiptum við stundum um tungumál þegar við þurfum þess ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Sjávarútvegur, fæðuöryggi og þróun heimsmála Þollý Rósmundsdóttir skrifar Skoðun Hreinskilni í leikskólamálum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannarómur um gervigreind Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Amma mætti á þing kennara Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Skugginn sem eltir: Þegar einelti fullorðinna fær að þrífast Ólafur Björn Guðmundsson skrifar Skoðun Ekki bara barnvænt sveitarfélag í kosningabaráttu Leyla Ósk Jónsdóttir skrifar Skoðun Frá auðlindaforskoti til þekkingarforskots Sigurður Atli Jónsson skrifar Skoðun Schengen - hvað færir það okkur? Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Af hverju treystir Reykjavík ekki atvinnulífinu? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Óvissa í aðfangaöflun landbúnaðar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Neitunarvaldið Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Mitt heimili, mín rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Óásættanleg seinkun — hvalirnir munu borga fyrir það Arne Feuerhahn skrifar Skoðun Viltu ekki bara fá þér kött? Signý Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Vekjum Vífilsstaði - Úr biðstöðu í bæjarbrag Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um borgarlínur í Skandinavíu Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Berum höfuðið hátt áfram Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hefjum uppbyggingu miðbæjar Egilsstaða Jóhann Hjalti Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Ég hafði óbilandi trú á þessari ríkisstjórn þegar hún tók við völdum. „Mér blæðir það í augum sem Íslendingi" hvað aðgerðarleysi hennar í málefnum heimilanna hefur verið algjört. Þau komust til valda algjörlega á fölskum forsendum. Ég er svo yfir mig gáttaður á getuleysi þessarar ríkisstjórnar, slæm var stjórnin sem var fyrir en þessi stjórn er að slá öll met í verkleysi og vankunnáttu. Til hvers heldur þetta fólk að það sé kosið á þing? Þetta fólk er búið að hafa öll tækifæri í heiminum frá því þau tóku við til þess að taka á þessum málum. Ef þessi ríkisstjórn hefði tekið strax á lánamálum heimilanna t.d. með 20-30% leiðréttingu erlendra lána hefði staðan verið allt önnur í dag. Ég er viss um að 99% fólksins í landinu hefði sætt sig við það, þá hefðu þeir átt að frysta vísitöluna í byrjun árs 2008. Hvernig dirfast þau að halda því fram að við höfum ekki efni á þessu, því staðreyndin er sú að leið ríkisstjórnarinnar verður mikið dýrari þegar upp verður staðið. Mig langar að nefna eitt dæmi sem ég þekki um fólk sem keypti íbúð á 30 millj. fyrir kreppu. Þau áttu eigin sparnað upp á 12 millj. og tóku 18 millj. að láni hjá Frjálsa fjárfestingabankanum. Núna, eftir nýjustu æfingar Árna Páls og Steingríms, er sparnaður þeirra upp á 12 millj. farinn út um gluggann, eftirstöðvar af láninu eru rúmlega 30 millj. og íbúðin kannski að verðmæti 20 millj. Ráðherrar í ríkisstjórninni kalla aðra stjórnmálamenn vitleysinga. Margur telur mig sig, ég segi burt með vitleysinga-ríkisstjórnina, ykkar tími er farinn. Steingrímur, þú staglast sífellt á því hvað þetta er erfitt, það er af því að þú kannt bara að blaðra en ekkert til verka! Getur verið að þessi afglöp ríkisstjórnarinnar í málefnum heimilanna þurfi að fara fyrir landsdóm?
Skoðun Af hverju skiptum við stundum um tungumál þegar við þurfum þess ekki? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Skugginn sem eltir: Þegar einelti fullorðinna fær að þrífast Ólafur Björn Guðmundsson skrifar
Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar