NBA í nótt: Kobe heitur í sigri Lakers Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. desember 2010 09:08 Kobe Bryant í leiknum í nótt. Mynd/AP
LA Lakers vann Washington, 103-89, í NBA-deildinni í nótt þar sem Kobe Bryant skoraði tólf stig í röð í þriðja leikhluta. Lakers stakk af á þeim leikkafla þar sem liðið skoraði sautján stig gegn aðeins tveimur frá Washington. Alls skoraði Bryant sextán af 24 stigum sínum í þriðja leikhlutanum. Bryant klikkaði reyndar á þremur vítaskotum í röð þegar brotið var á honum utan þriggja stiga línunnar. Hann sagði að það hefði aldrei áður gerst á hans ferli í körfubolta. Það kveikti þó heldur betur í honum þar sem að Bryant setti niður þrjá þrista síðar í leikhlutanum og fór svo aftur á vítalínuna þar sem hann setti niður öll þrjú vítaköstin sem hann fékk. Pau Gasol var með sextán stig og sjö stoðsendingar fyrir Lakers og Lamar Odom átján stig og tíu fráköst. Shannon Brown var með setán stig. Nick Young var stigahæstur hjá Washington með 21 stig. Charlotte vann Toronto, 97-91. Nazr Mohammed var með átján stig og átta fráköst fyrir Charlotte. Denver vann Orlando, 111-94, þar sem Carmelo Anthony fór á kostum og skoraði 35 stig og tók ellefu fráköst. Philadelphia vann New Jersey, 82-77. Spencer Hawes var með átján stig fyrir Philadelphia en þetta var fyrsti útisigur liðsins í síðustu níu leikjum. Houston vann Sacramento, 118-105. Luis Scola var með 23 stig og tíu fráköst fyrir Houston þó svo að hann hafi hvílt í fjórða leikhluta. Detroit vann Atlanta, 103-80. Richard Hamilton skoraði 24 stig fyrir Detroit. Golden State vann Minnesota, 108-99. Monta Ellis skoraði 34 stig fyrir Golden State og Reggie Williams 26. Golden State hafði tapað sjö leikjum í röð fyrir þennan.
NBA Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Sjá meira