Stuðningsmenn Cleveland létu LeBron James heyra það - myndband Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 3. desember 2010 10:15
LeBron James, leikmaður Miami Heat, var aðalfréttaefnið í NBA deildinni í gær þegar hann fór í fyrsta sinn á gamla heimavöllinn í Cleveland eftir umdeild félagaskipti hans s.l. sumar. Í myndbandinu fyrir er samantekt frá leiknum í gær þegar LeBron James kom inn á keppnisvöllinn og sjón er sögu ríkari. Stuðningsmenn Cleveland hafa á undanförnum fimm mánuðum beðið eftir „sætri hefnd" gegn James sem var elskaður og dáður í borginni í þau sjö ár sem hann lék með liðinu. James er aðeins 25 ára gamall en hann var valinn fyrstur allra í háskólavalinu árið 2003 þegar hann var 19 ára gamall. James er langt frá því að vera enn elskaður og dáður af stuðningsmönnum Cleveland og það fór ekki framhjá neinum í gær þegar Miami mætti til leiks í Cleveland.Ilgauskas fékk hrós en baulað var á JamesŽydrūnas Ilgauskas og LeBron James sitja hér á varamannabekknum gegn Cleveland í gær.APŽydrūnas Ilgauskas, fyrrum leikmaður Cleveland, sem er núna í röðum Miami Heat fékk góðar móttökur og klöppuðu stuðingsmenn Cleveland fyrir honum í leikmannakynningunni. Ilgauskas, sem er 2.20 m. hár miðherji frá Litháen lék í 12 ár með Cleveland en hann var látinn fara frá félaginu á síðasta tímabili í leikmannaskiptum.LeBron James sýndi andlegan styrk sinn með því að skora 38 stig í 118-90 sigri Miami og þar af skoraði hann 24 stig í þriðja leikhluta.„Stuðningsmenn Cleveland voru ekki á mínum lista fyrir leikinn, ég ber of mikla virðingu fyrir þeim. Það heyrðist einnig vel í leikmönnum Cleveland á varamannabekknum og mér leiddist það ekki. Ég naut þess að spila gegn gömlu félögunum en ég sé ekki eftir þeirri ákvörðun að yfirgefa Cleveland. Ég er sáttur við lífið og tilveruna," sagði LeBron James í gær.
NBA Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Sjá meira