Kobe búinn að finna sinn Kerr/Paxson í Steve Blake - myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. október 2010 17:15 Kobe Bryant sést hér með Steve Blake eftir sigurkörfuna. Mynd/AP
Einn af nýju mönnunum í Los Angeles Lakers liðinu, Steve Blake, var hetja liðsins í 112-110 sigri á Houston Rockets í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Hann skoraði sigurkörfuna með þriggja stiga skoti 19 sekúndum fyrir leikslok. Sóknin minnti mikið á það þegar Michael Jordan treysti John Paxson og Steve Kerr fyrir síðasta skotinu þegar Chicago Bulls liðið vann NBA-titilinn á árum áður. Líkt og Jordan gerði svo eftirminnilega með Steve Kerr fyrir þrettán árum þá lét talaði Kobe Bryant við Steve Blake eftir leikhlé og sagði honum að vera tilbúinn. Kobe Bryant keyrði síðan inn í vörnina og gaf boltann úr á Steve Blake sem skoraði. Sigurkörfuna má sjá með því að smella hér. „Það var almennilegt af honum að treysta mér fyrir svona stóru skoti," sagði Blake en hann og Kobe voru þarna að spila sinn fyrsta alvöruleik saman. Steve Blake var með 10 stig á 21 mínútu í leiknum og Lakers vann með 13 stigum þegar hann var inn á vellinum. Blake setti niður 3 af 4 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Kobe Bryant skoraði 27 stig í leiknum en hann gaf sína sjöundu stoðsendingu á Blake í umræddri sókn. Fyrir leikinn hafði Bryant tekið við fimmta hringnum sínum og hver veit nema að Blake spili stóra rullu í að ná þeim sjötta í hús alveg eins og Paxson og Kerr hjálpuðu Michael Jordan að ná í hring á sínum tíma.
NBA Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Sjá meira