NBA í nótt: Phoenix sópaði út San Antonio Spurs Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. maí 2010 09:00 Steve Nash fagnar sigri í nótt. Mynd/AP
Phoenix Suns þurfti bara fjóra leiki til þess að slá San Antonio Spurs út úr undanúrslitum Vesturdeildarinnar í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Phoenix vann 107-101 sigur í fjórða leik liðanna í San Antonio í nótt og er fyrsta liðið síðan 2001 til þess að sópa út San Antonio. Steve Nash tókst loksins að komast í gegnum San Antonio en hann hafði sex sinnum þurft að sætta sig við að detta út fyrir Spurs-liðinu í úrslitakeppninni. Nash var með 20 stig og 9 stoðsendingar í leiknum í nótt en hann endaði hann með myndarlegt glóðarauga eftir að hafa fengið slysa-olnbogaskot frá Tim Duncan í þriðja leikhluta. „Auðvitað er ég mjög leiður og reiður yfir því að við töpuðum en á sama tíma get ég verið ánægður fyrir hönd Nash og (Amare) Stoudemire. Þeir hafa gefið allt í leikina á móti okkur undanfarin ár og þetta hafði aldrei fallið með þeim. Það féll hinsvegar allt með þeim í ár," sagði Tony Parker, leikstjórnandi San Antonio Spurs eftir leikinn. Amare Stoudemire skoraði 29 stig fyrir Phoenix, Nash var eins og áður sagði með 20 stig og Jared Dudley skoraði 16 stig. Tony Parker var stigahæstur með 22 stig hjá Spurs. Tim Duncan skoraði 17 stig og tók 8 fráköst og Manu Ginobili var með 15 stig og 9 stoðsendingar
NBA Mest lesið Stuðningsmenn Blika og Víkinga spyrja fyrir hverja leikurinn sé Íslenski boltinn UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé Fótbolti Bauluðu á verðandi US Open meistara Golf Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Körfubolti Karlar sem skulda meðlag í Argentínu mega ekki horfa á Messi á HM Fótbolti Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Enski boltinn Bröndby-bullur ráðast ekki bara á Víkinga heldur einnig á konur í hjólastól Fótbolti Grænhöfðaeyjar komu aftur á óvart og sögulegt hjá Mo Salah og félögum Fótbolti Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Enski boltinn Lést uppi á hótelherbergi í draumaferð sinni á HM Fótbolti Fleiri fréttir Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Birta hjartnæma mynd af Martin eftir afrekið mikla Martin þýskur meistari eftir lygilega endurkomu Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Sjá meira