Segir skilið við arfleifð Blairs 28. september 2010 01:45 Ed og David Miliband Takast í hendur eftir að David flutti ræðu á landsfundi Verkamannaflokksins í gær.fréttablaðið/AP
Ed Miliband, nýkjörinn leiðtogi Verkamannaflokksins í Bretlandi, segir að arfleifð Tonys Blair eigi að heyra sögunni til. Nú þurfi Verkamannaflokkurinn að koma nýrri kynslóð stjórnmálamanna á þing, sem lausir eru undan byrði Íraksstríðsins og fjármálakreppunnar. „Nýi Verkamannaflokkurinn átti rétt á sér á sínum tíma og við munum halda eftir ýmsu úr þeirri stefnu, eins og til dæmis þeirri hugmynd að höfða til allra hópa þjóðfélagsins,“ sagði nýi formaðurinn. „En þessi stefna flæktist í ákveðnum stjórnmálastíl og varð föst í eigin sjálfsöryggi.“ Hann segist ætla að forðast bæði dekur Blairs við viðskiptaheiminn og skilyrðislausan stuðning hans við Bandaríkjastjórn, en sagði þó ekkert hæft í þeirri gagnrýni að hann verði of vinstrisinnaður. Ed vann í leiðtogakjöri flokksins um helgina sigur á bróður sínum, David, sem var utanríkisráðherra í stjórn Gordons Brown og hafði lengi þótt líklegur til að taka við forystu í flokknum.- gb
Fréttir Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira