Stórsveit í stuði Trausti Júlíusson skrifar 17. janúar 2011 06:00 Helvítis fokking funk með Samúel Jón Samúelsson Big Band.
Tónlist Helvítis fokking funk Samúel Jón Samúelsson Big Band Eitt af því sem setti sterkan svip á búsáhaldabyltinguna var takturinn sem var sleginn í mótmælunum. Einhvern tímann röðuðu nokkrir af fremstu trommuleikurum landsins sér upp fyrir framan Alþingishúsið, en oftast voru það bara venjulegir mótmælendur sem framkölluðu taktinn með pottum, pönnum og öðru lauslegu. Þessi taktur og orkan í mótmælunum varð Samúel Jóni Samúelssyni innblástur á plötunni Helvítis fokking funk sem hann gerði með stórsveitinni sinni. Nafnið er auðvitað viðsnúningur á frægasta slagorði sömu byltingar og á umslaginu eru fjölmargar myndir frá mótmælunum. Platan kom út í haust, en flaug frekar lágt - ég heyrði hana t.d. ekki fyrr en í desember. Helvítis fokking funk inniheldur 6 lög, en er samt um 55 mínútur að lengd. Lögin eru frá 7 og upp í 13 mínútur að lengd. Og þetta er hörkuplata. Sammi, sem samdi öll lögin, hefur greinilega verið í miklum ham. Þau eru hvert öðru betra. Þetta er djassskotið stórsveitarfönk sem átján meðlimir stórsveitarinnar flytja af krafti og tilfinningu, enda margir af bestu hljóðfæraleikurum landsins þar á meðal. Auðvitað er sótt í gamla frasa í þessari tónlist, en útfærslan er fersk og vel framreidd og tilvísunin í búsáhaldabyltinguna setur tónlistina í nýtt samhengi. Platan hefur sterkan heildarsvip, en hvert lag hefur samt sinn karakter. Upphafslagið, hið tæplega 13 mínútna Chicken Street, er léttleikandi fönksmellur sem er brotinn upp með búsáhaldaslætti. Mjög flott. Hrátt rafbassagrúv og flott sóló setja svip á titillagið, þungur raftaktur einkennir International Monetary Funk, en lokalagið Guð blessi Ísland er rólegt og lágstemmt, gefur hlustandanum tækifæri til að hugsa eftir öll lætin. Á heildina litið frábær plata. Tengingin við búsáhaldabyltinguna virkar vel, en þetta er líka bara pottþétt stórsveitarfönkplata. Fær bestu meðmæli. Niðurstaða: Samúel Jón Samúelsson og stórsveitin hans í miklum ham á frábærri fönkplötu.
Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Lífið Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Lífið Fleiri fréttir Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Sjá meira