Handbolti

Sveinbjörn kom tveimur tímum fyrir leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Sveinbjörn hitar upp fyrir leikinn í dag.
Sveinbjörn hitar upp fyrir leikinn í dag. Mynd/Vilhelm
Sveinbjörn Pétursson er kominn til Halle í Þýskalandi þar sem að strákarnir okkar spila gegn Þjóðverjum í undankeppni EM 2012 í dag.

Sveinbjörn var kallaður í hópinn eftir að Björgvin Páll Gústavsson meiddist eftir æfingu íslenska landsliðsins í gær. Björgvin Páll verður ekki með í dag og verða því þeir Hreiðar Levý Guðmundsson og Sveinbjörn markverðir Íslands í dag.

Sveinbjörn kom til Halle rétt fyrir klukkan 16.00 að staðartíma eða um tveimur tímum fyrir leik sem hefst núna klukkun 16.45 á íslenskum tíma. Hann flaug til Amsterdam í morgun og þaðan til Hannover. Við tók svo um 100 km akstur til Halle.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×