Öflugur skjálfti undan ströndum Japans - flóðbylgjuviðvörun gefin 11. mars 2011 06:35
Öflugur jarðskjálfti, 8,8 á richter-kvarðanum, reið yfir norðausturströnd Japans í morgun.Byggingar í höfuðborginni Tókíó skulfu í nokkrar mínútur og fólk þusti út á götur borgarinnar. Lögregla segir að margir hafi slasast þegar þak á skólabyggingu gaf sig en þar var margt fólk komið saman til þess að fagna útskrift. Flóðbylgjuviðvörun var gefin út fyrir stórt svæði og gæti bylgjan orðið allt að tíu metra há en viðvörunin gildir fyrir Japan, Rússland, Guam, Tæwan og Fillipseyjar. Einnig hefur viðvörun verið gefin út fyrir Indónesíu og Hawaí. Þegar hafa borist fregnir af flóðbylgjum sem náðu landi næst upptökum skjálftans en þau voru um 125 kílómetra undan ströndum landsins og varð skjálftinn á um tíu kílómetra dýpi. Fréttamyndir sýna flóð í strandbænum Onihama og eldur hefur komið upp í að minnsta kosti einni byggingu á hafnarsvæði í einum bænum. Á myndunum má sjá bíla veltast um í flóðinu og bátar hafa einnig slitnað upp og fljóta með. Bylgjan tók einnig með sér hús og önnur mannvirki. Nokkrir skjálftar hafa riðið yfir sama svæði síðustu daga, þar á meðal einn af stærðargráðunni 7,3 á richter á miðvikudag. Eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið, þar á meðal einn af stærðinni 7,4.
Jarðskjálfti í Japan Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira