Stelpurnar unnu Pólland í fyrsta sinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. apríl 2011 18:00 Hrafnhildur Ósk Skúladóttir skoraði átta mörk gegn Pólverjum í dag. Mynd/Ole Nielsen
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta byrjar vel undir stjórn Ágústar Þórs Jóhannssonar en liðið vann 24-22 sigur á Póllandi í dag í æfingaleik í Tyrklandi eftir að hafa unnið heimastúlkur í gær. Íslenska liðið var 12-11 yfir í hálfleik. Þetta var sögulegur sigur í dag því íslenska kvennalandsliðið hafði aldrei áður náð að vinna Pólland í A-landsleik kvenna. Liðið hefur unnið tvo fyrstu leiki sína undir stjórn Ágústar en stelpurnar eru nú að undirbúa sig fyrir umspilsleiki á móti Úkraínu. „Að sögn Einars Jónssonar aðstoðarlandsliðsþjálfara lék liðið frábæra 6:0 vörn í leiknum með þær Örnu Sif Pálsdóttir og Stellu Sigurðardóttir fyrir miðju og voru báðir markverðirnir mjög sterkir á bak við varnarleikinn," sagði frétt á heimasíðu HSÍ og þar segir ennfremur: „Hrafnhildur Ósk Skúladóttir og Rut Jónsdóttir fóru svo fyrir sóknarleiknum og áttu báðar mjög góðan leik. Þær Brynja Magnúsdóttir og Marthe Sördal skoruðu í dag sín fyrstu mörk fyrir Íslands hönd og kom Brynja sérstaklega sterk inn á mikilvægu augnabliki í leiknum." Á morgun leikur liðið svo óopinberan æfingarleik gegn Pólverjum en leiknar verða 3 sinnum 25 mínútur. Ísland-Polland 24-22 (12-11)Mörk Íslands: Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 8, Rut Jónsdóttir 5, Arna Sif Pálsdóttir 3, Hanna G. Stefánsdóttir 3, Brynja Magnúsdóttir 1, Harpa Sif Eyjólfsdóttir 1, Marthe Sördal 1, Karen Knútsdóttir 1, Ásta Birna Gunnarsdóttir 1.Í markinu lék Íris Björk Símonardóttir í 40 mínútur og varði 12 bolta og Guðrún Ósk Maríasdóttir í 20 mínútur og varði 7 bolta.
Íslenski handboltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira