Odom valinn besti varamaðurinn í NBA Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. apríl 2011 10:15 Lamar Odom með félögum sínum í LA Lakers. Mynd/AP
Lamar Odom, leikmaður LA LAkers, var í nótt útnefndur besti varamaðurinn í NBA-deildinni í körfubolta eða besti sjötti leikmaðurinn eins og verðlaunin eru kölluð. Odom varð þar með fyrsti leikmaðurinn í sögu Lakers til að hljóta þessa útnefningu en hann hefur átt frábært tímabil. Hann hefur aldrei skotið betur á ferlinum en meðalnýtingin hans á tímabilinu er 53 prósent. Hann hefur verið varamaður í 47 leikjum á tímabilinu en í byrjunarliðinu í 35. Hann hefur að meðaltali skorað 14,4 stig, tekið 8,7 fráköst og gefið þrjár stoðsendingar. Aðeins þeir sem hafa oftar verið varamenn en í byrjunarliðinu á viðkomandi tímabili koma til greina í kjörinu. Odom kom til Lakers árið 2004, þá í skiptum fyrir Shaquille O'Neal sem fór til Miami Heat. Hann er nú á sínu tólfta tímabili í deildinni. „Ég reyni fyrst og fremst að sinna því hlutverki sem ég þarf að gera hjá mínu liði. Það er nú að spila eins vel og ég get hvern einasta leik og að breyta leikjum þegar ég kem við sögu,“ sagði Odom. Lakers tapaði óvænt fyrir New Orleans í fyrstu viðureign liðanna í úrslitakeppninni en liðin mætast aftur í kvöld í Los Angeles.
NBA Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Sjá meira