Fá leikmenn Dallas ekki meistarahringa? Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. júní 2011 23:30 Mark Cuban hefur átt meirihluta í Dallas Mavericks frá árinu 2000 Mynd/AP
Mark Cuban eigandi Dallas Mavericks sem varð NBA-meistari á dögunum segist ekki ætla að láta framleiða hringa fyrir leikmenn sína. Sigurvegarar í NBA-deildinni hafa frá upphafsárum deildarinnar fengið hringa frá eigendum sínum sem tákn um afrekið. Cuban segir hringa vera gamaldags. Í viðtali á heimasíðu NBA-deildarinnar segir Cuban: „Tími hringanna er liðin. Það er kominn tími til að taka þetta upp á næsta stig," en talið er að Cuban ætli að gefa leikmönnum sínum eitthvað ennþá eftirsóknarverðara að sínu mati. Leikmenn Dallas eru ekki sammála sjónarhorni eigandans. „Við verðum að ræða þetta við hann," segir Dirk Nowitzki verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar. „Það getur ekki verið búið að ákveða þetta. Hann vill alltaf gera eitthvað öðruvísi, eitthvað merkilegra, en hringurinn er sígildur," bætti Nowitzki við. Þjálfarinn Rick Carlisle sem á hring frá sigri Boston Celtics árið 1986 er sammála. „Við verðum að fá hringa. Ég veit ekki hvað hann er að spá. Maður verður að fá hring þegar maður vinnur deildina. Ef hann vill gefa leikmönnunum eitthvað meira, þá er það frábært," sagði Carlisle. Cuban er þekktur fyrir að fara sínar eigin leiðir. Til að mynda var hann einn af tveimur eigendum NBA-liðs sem greiddu atkvæði gegn flutningi Seattle Sonics, nú Oklahoma City Thunder, frá Seattle árið 2008. Hinn var Paul Allen, eigandi Portland Trail Blazers, sem býr í Seattle og á meðal annars NFL-liðið Seattle Seahawks.
NBA Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Fleiri fréttir Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Sjá meira