Pepsi-deild kvenna: Bares sigraðist á Birnu Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 23. júní 2011 22:10 Úr leik Stjörnunnar og ÍBV í kvöld. Mynd/Anton
Stjarnan sigraði ÍBV 2-1 á heimavelli sínum í Garðabæ í kvöld og varð þar með fyrsta liðið til að sigra og skora hjá ÍBV í sumar en með sigrinum komst Stjarnan upp fyrir ÍBV og í annað sæti Pepsí deildar kvenna. Það leit þó ekki vel út í hálfleik fyrir Stjörnuna því ÍBV var 1-0 yfir með marki Kristínar Ernu Sigurlásdóttur á 23. mínútu en ÍBV hafði ekki fengið á sig mark fyrir leikinn og hélt Birna Berg Haraldsdóttir í raun marki sínu hreinu í 515 fyrstu mínútur ÍBV á tímabilinu eða allt þar til Ashey Bares fann leiðina fram hjá henni á 66. mínútu. Ashley Bares var aftur á ferðinni níu mínútum síðar eftir mistök Birnu í markinu og tryggði Stjörnunni þar með stigin þrjú í þessum mikilvæga toppslag. Stjarnan var mikið betri aðilinn í seinni hálfleik og munar þar mestu um að liðið stjórnaði miðjunni algjörlega eftir harða og jafnari baráttu í fyrri hálfleik. Það virtist draga af leikmönnum ÍBV er leið á leikinn og lá jöfnunarmarkið í loftinu þegar það kom. ÍBV fékk þó eitt færi til að jafna leikinn í uppbótartíma en Berglind Björg skallaði þá yfir mark Stjörnunnar frá vítapunktinum og því fóru stigin þrjú í Garðabæ.Úrslit kvöldsins:Stjarnan-ÍBV 2-1 0-1 Kristín Erna Sigurlásdóttir (23.), 1-1 Ashley Bares (66.), 2-1 Ashley Bares (75.)Þór/KA-Afturelding 3-1 0-1 Kristrún Halla Gylfadóttir (12.), 1-1 Rakel Hönnudóttir (59.), 2-1 Rakel Hönnudóttir (74.), 3-1 Mateja Zver (90.+1).Fylkir-Þróttur R. 2-1 1-0 Anna Björg Björnsdóttir (11.), 2-0 Ruth Þórðardóttir (31.), 2-1 Margrét María Hólmarsdóttir (43.)Valur-Breiðablik 3-1 1-0 Caitlin Miskel (4.), 2-0 Hallbera Guðnú Gísladóttir (46.), 3-0 Dagný Brynjarsdóttir (52.), 3-1 Greta Mjöll Samúelsdóttir (75.)Grindavík-KR 1-1 0-1 Margrét Þórólfsdóttir (17.), 1-1 Shaneka Gordon (31.). Upplýsingar um markaskorara fengnir frá fótbolti.net
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Enski boltinn Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport „Ég held ég sé komin með nóg af karlmönnum í bili“ Sport Uppgjörið: Spánn - Ísland 3-0 | Spænska liðið sýndi mátt sinn og megin á köflum Fótbolti Gakpo leit upp til Alberts Enski boltinn Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Golf Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Körfubolti Glódís vonsvikin: „Þurfum að skoða þetta sem þjóð“ Fótbolti Í gervi nautabana fyrir eina sigurinn á Spáni Fótbolti Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Formúla 1 Fleiri fréttir Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Íslensk félög greiddu yfir fimm milljónir í sektir Arnar og Bjarki fengu gullmerki ÍA á sama tíma Jasmín á gamlar slóðir yngri bróður síns Viðar tekur slaginn með Selfossi Hallgrímur framlengir við KA „Engar áhyggjur af framtíð liðsins“ Kominn með nóg af flakkinu Víkingur og Breiðablik unnu bæði 1-0 sigra í kvöld Snýr aftur heim frá Val: „Nenni ekki að hafa þetta of væmið“ Þjálfari Stólanna segir upp störfum áður en tímabilið byrjar Sjá meira