Málfríður: Komum trylltar inn í seinni hálfleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. ágúst 2011 19:03
Málfríður Sigurðardóttir, fyrirliði Vals, tók við bikarnum eftir að Valskonur unnu 2-0 sigur á KR í bikarúrslitaleik kvenna á Laugardalsvellinum í kvöld. Þetta er fyrsti stóri bikarinn sem Málfríður tekur á móti en hún er á sínu fyrsta ári sem fyrirliði liðsins. „Þetta er æðislegt og það er mjög gaman að fá að lyfta bikarnum," sagði Málfríður Sigurðardóttir kát eftir leikinn. „Svona bikarúrslitaleikir eru alltaf jafnir og þetta var bara hörkuleikur. Við enduðum fyrri hálfleikinn mjög illa en við ætluðum að koma brjálaðar inn í seinni hálfleikinn og það gekk," sagði Málfríður. „Við ákváðum bara að koma trylltar inn í seinni hálfleikinn því við ætlum að koma með eina dollu heima á Hlíðarenda í sumar. Við getum nefnilega eiginlega kvatt Íslandsbikarinn sem er nánast farinn yfir í Garðabæinn," sagði Málfríður. „Það er ekki slæmt að taka bikarinn þrjú ár í röð og þetta er að ég held í fyrsta sinn sem kvennalið Vals vinnur bikarinn þrjú ár í röð," sagði Málfríður en Valskonur voru að vinna bikarinn í þrettánda sinn. „Ég hef orðið nokkrum sinnum bikarmeistari áður og ég man það að ég var bikarmeistari í fyrsta sinn 2001 og hélt því upp á tíu ára afmæli þess titils í dag. Þetta var sætt," sagði Málfríður og á meðan er von um að vinna Íslandsmeistarabikarinn þá heldur Valsliðið áfram. „Við klárum alla leiki sem eigum eftir og svo er það Evrópukeppnin sem bíður okkar. Við höldum áfram því það er nóg eftir af sumrinu hjá okkur," sagði Málfríður en það má sjá allt viðtalið með því að smella hér fyrir ofan.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Handbolti Skýrsla Vals: Ekki aftur Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn Handbolti Aron Kristjáns tapaði líka með minnsta mun Handbolti Fleiri fréttir Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Sjá meira