Sport

Myndasyrpa af sigri Íslands gegn Noregi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Margrét Lára Viðarsdóttir fagnar í leiknum.
Margrét Lára Viðarsdóttir fagnar í leiknum. Mynd/Daníel
Ísland vann um helgina glæsilegan 3-1 sigur á Noregi í undankeppni EM 2013. Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði tvö marka Íslands og Margrét Lára Viðarsdóttir eitt.

Fyrri hálfleikur var eign Íslendinga frá upphafi til enda þar sem stelpurnar okkar léku á als oddi og skoruðu þrjú góð mörk. Mörk Hólmfríðar voru bæði stórglæsilegt en Margrét Lára skoraði sitt mark úr vítaspyrnu sem hún fiskaði sjálf.

Rúmlega þrjú þúsund áhorfendur mættu á Laugardalsvöllinn en Ísland mætir næst Belgíu á miðvikudagskvöldið á sama stað.

Daníel Rúnarsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, fór á völlinn og tók þessar myndir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×