Kobe Bryant: Miklar líkur á því að ég spili á Ítalíu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. september 2011 20:30 Kobe Bryant. Mynd/AP
Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles Lakers, er greinilega mjög spenntur fyrir því að spila með ítalska félaginu Virtus Bologna á meðan verkfall NBA-deildarinnar stendur. Bryant hefur fengið mörg mismundandi tilboð frá ítalska liðinu og getur valið sér að spila einn leik, taka mánuð, tvo mánuði eða spila jafnvel allt tímabilið á norður Ítalíu. Ítalska blaðið Gazzetta dello Sport hefur það eftir Kobe Bryant, sem er staddur í kynningarferð á Ítalíu á vegum styrktaraðila síns, að það séu miklar líkur á því að hann spili á Ítalíu og að honum líði eins og heima hjá sér þegar hann er á Ítalíu. „Það eru miklar líkur á því að ég spili á Ítalíu á meðan verkfallinu stendur og þarna yrði draumur að rætast fyrir mig. Ég hef verið að skoða þetta og ræða málin undanfarna daga. Þetta lítur vel út og það eru góðar fréttir fyrir mig," sagði Kobe Bryant. Heimsþekkt ítalskt fyrirtæki er tilbúið að borga brúsann en Kobe getur valið úr ýmsum tilboðum. Hann getur fengið fimm milljónir dollara samning fyrir allt tímabilið en það er einnig í boði að fá tvær milljónir dollara fyrir tvo mánuði, 1,3 milljónir dollara fyrir einn mánuð eða 900 þúsund dollara fyrir einn leik. Kobe Bryant hefur sterk tengsl við Ítalíu því faðir hans lék þar sem atvinnumaður frá 1984-91 og Bryant eyddi þar æskuárum sínum. Kobe kann líka tungumálið sem er mikill kostur.
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira