NBA-leikmaður fluttur heim til mömmu og pabba til að spara pening Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2011 22:45 Andy Rautins (númer 11) í leik með New York Knicks í fyrravetur. Mynd/Nordic Photos/Getty
Andy Rautins, bakvörður NBA-liðsins New York Knicks, hefur orðið að flytja heim til foreldra sinna til þess að spara pening á meðan NBA-verkfallinu stendur. Rautins sem er 25 ára gamall fékk aftur sitt gamla herbergi og kann vel við matinn hennar mömmu sinnar. Rautins var í aukahlutverki með Knicks-liðinu á sínu fyrsta tímabili og kom bara við sögu í fimm leikjum. Hann er frá Kanada en foreldrar hans búa rétt utan við Syracuse í New York fylki. Rautins stundaði háskólanám í Syracuse-skólanum. „Það er æðislegt að fá heimalagaðan mat og þetta er líka frábært tækifæri til að eyða tíma með fjölskyldu og vinum. Vanalega er ég mjög upptekinn á þessum tíma ársins en ég reyni bara að líta jákvætt á þetta. Þetta er gott útspil til að spara pening sem er eitthvað sem við NBA-leikmennirnir þurfum að hugsa um þessi misserin," sagði Andy Rautins. New York Knicks notaði 38. valréttinn sinn í nýliðavalinu 2010 til að taka Andy Rautins sem var með 12,1 stig og 4,9 stoðsendingar að meðaltali á sínu síðasta ári með Syracuse-skólanum.
NBA Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Ída Marín skoraði í stórsigri í Evrópubikarnum Fótbolti Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Körfubolti Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Handbolti Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira