Fundað aftur í NBA-deilunni í dag Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. nóvember 2011 14:45 David Stern. Nordic Photos / Gettty Images
Svo virðist sem að vonarglæta hafi kviknað um að verkbann NBA-deildarinnar verði senn á enda en aðilar funduðu lengi í gær og munu aftur hittast í dag. Tilboði David Stern, framkvæmdarstjóra deildarinnar, var þó hafnað af leikmönnum. Þrátt fyrir það virðast aðilar hafa eitthvað til að tala um og ætla að halda áfram að funda í dag. Lítið hefur verið gefið uppi um innihald viðræðanna en deilurnar snúast um skiptingu tekna deildarinnar á milli leikmanna og félaganna. Talið er líklegt að aðilar eru reiðubúnir að sættast á skiptan hlut en þá á enn eftir að leysa ýmis mál sem varðar launaþak leikmanna. Stern lagði fram tilboð sem var í gildi til 22.00 í gærkvöldi en leikmannasamtökin svöruðu því ekki. Stern hótaði því að yrði ekki gengið að því kæmi annað tilboð sem væri ekki jafn gott. Hann sagði þó tilboðið enn í gildi á meðan að viðræður héldu áfram. Derek Fisher, formaður leikmannasamtakanna, varaði við of mikilli bjartsýni. „Það gekk lítið í dag en við mætum aftur á morgun. Við skulum sjá til hvort það er ástæða til að halda þeim áfram á þessum nótum."
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira