Bréf stjóra þjálfarasamtaka NBA: Þið verðið að bjarga tímabilinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2011 23:00 Mynd/AP
Michael Goldberg, framkvæmdastjóri þjálfarasamtaka NBA, tók sig til og skrifaði opið bréf til eigenda NBA-liðanna, leikmannasamtakanna og leikmanna NBA-deildarinnar þar sem hann biðlar til allra deiluaðila um að ná samningum og bjarga NBA-tímabilinu. Það er lítið að frétta af NBA-deilunni og virðist eins og báðir deiluaðilar séu að bíða eftir næstu skrefinu hjá hinum. NBA-eigendurnir hafa sem dæmi ekkert aðhafst síðan að leikmennirnir höfnuðu síðasta samningstilboði þeirra, leystu upp leikmannasamtökin sín og höfðuðu mál gegn NBA. Goldberg hefur mikla virðingu innan NBA-deildarinnar enda hefur hann verið formaður þjálfarasamtaka deildarinnar í 30 ár. Hann nefnir sérstaklega tjónið, sem varð þegar NHL-deildin missti 2004-05 tímabilið vegna verkfalls, sem víti til varnaðar. Goldberg segir í bréfinu að það megi aldrei koma til þess að NBA-tímabilið verði flautað af því það myndi hafa skelfilegar afleiðingar fyrir framtíð NBA-deildarinnar. Hann segir að það myndi taka mörg ár að vinna upp tjónið sem yrði á vinsældum og virðingu deildarinnar fari allt á versta veg og það sé alls ekki rétta lausnin að fara með deiluna fyrir dómstóla. „Þið verðið að bjarga tímabilinu. Sagan hefur sýnt sig að öll deilumál í íþróttum leysast á endanum en það má engan tíma missa. Báðir deiluaðilar þurfa að hætta hugsa um eigin hagsmuni, virða fyrir sér fyrirsagnirnar úr fjármálaheiminum og vinna að því að leysa þessa deilu," skrifaði Michael Goldberg.
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira