Chris Paul var kominn til Lakers en David Stern sagði nei Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. desember 2011 14:00 Chris Paul. Mynd/Nordic Photos/Getty
NBA-deildin stoppaði stór skipti í nótt en þá leit allt út fyrir það að leikstjórnandinn Chris Paul myndi spila við hlið Kobe Bryant hjá Los Angeles Lakers í vetur. Bandarískir fjölmiðlar segja að aðrir eigendur deildarinnar hafi kvartað og því hafi David Stern, yfirmaður NBA, ákveðið að leyfa ekki skiptin. NBA-deildin á New Orleans Hornets liðið og er að leita að nýjum eigendum og það hefur verið barátta fyrir því meðal eigendanna að koma veg fyrir að stærstu stjörnurnar safnist fyrir á stærstu markaðssvæðunum. Það hefði einmitt gerst ef Paul hefði endað í Los Angeles en New Orleans Hornets liðið er frá einu af "litlu" markaðssvæðunum í NBA. Þrjú lið voru búin að ná saman eftir flóknar samningaviðræður. Chris Paul átti að fara til Lakers-liðsins, Lamar Odom hefði endaði í New Orleans og Pau Gasol átti að fara til Houston Rockets. Chris Paul verður því að mæta á sína fyrstu æfingu hjá New Orleans Hornets í dag en Paul er að mörgum talinn vera einn besti leikstjórnandinn í deildinni. Paul hefur þegar gefið það út að hann ætli ekki að framlengja samning sinn við Hornets-liðið þegar hann rennur út í sumar. Lamar Odom var búinn að væla yfir því í útvarpsviðtali að hann væri að fara frá Los Angeles og einu viðbrögð Chris Paul á twitter-síðu sinni voru: “WoW.” Báðir leikmennirnir verða því í sérstakri stöðu þegar þeir hitt liðsfélaga sína seinna í dag.
NBA Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira