Barði semur fyrir franskt nýstirni 8. janúar 2011 13:00 Barði samdi tvö lög ásamt frönsku söngkonunni Juliette Katz, sem gefur út fyrstu plötuna sína í apríl.
Barði Jóhannsson samdi tvö lög fyrir franska söngkonu sem spáð er glæstum frama. Hann undirbýr nýja plötu Bang Gang. „Ég var beðinn um að semja með þessari stelpu sem hafði fengið samning við Universal í Frakklandi," segir tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson. Barði samdi lögin ásamt frönsku söngkonunni Juliette Katz, sem gefur út fyrstu plötu sína í apríl. Ástralska söngkonan Sia syngur með Juliette í öðru laginu, en sú fyrrnefnda hefur getið sér gott orð bæði sem söngkona og lagahöfundur. Hún samdi meðal annars þrjú lög á nýjustu plötu bandarísku söngkonunnar Christinu Aguilera. Þá er hún tilnefnd til Golden Globe verðlauna ásamt Aguilera og Samuel fyrir lagið Bound to You sem er í kvikmyndinni Burlesque. Loks hefur hún sungið með breska rafdúettnum Zero 7. Hægt er að kynna sér Juliette Katz nánar á Myspace-síðu hennar. Ýmislegt er fram undan hjá Barða á nýju ári og spurður hvenær ný plata sé væntanleg frá Bang Gang er svarið einfalt: „Með sumrinu." Barði sendi frá sér plötuna Best of Bang Gang fyrir áramót, en auk þess að innihalda nokkur af bestu lögum hljómsveitarinnar flytja listamenn á borð við Mammút, Dikta og Daníel Ágúst lög Bang Gang. atlifannar@frettabladid.is
Golden Globes Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Lífið Fleiri fréttir Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Sjá meira