Ekki reykja krakk Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 1. febrúar 2011 09:10 Christian Bale og Mark Wahlberg í The Fighter.
Bíó The Fighter Leikstjóri: David O. Russell Aðalhlutverk: Mark Wahlberg, Christian Bale, Amy Adams, Melissa Leo. The Fighter er ein þeirra mynda sem tilnefndar eru sem besta kvikmynd á Óskarsverðlaunahátíðinni sem haldin verður í lok mánaðarins. Reyndar er myndin tilnefnd í sex öðrum flokkum og verður því að teljast ein af „stóru" myndunum á hátíðinni í ár. Mark Wahlberg leikur boxarann Micky Ward en áætlanir hans um frægð og frama í hnefaleikum eru á leið í vaskinn vegna lélegrar umboðsmennsku ráðríkrar móður hans. Bróðir hans, Dicky Eklund (Christian Bale), er fyrrverandi hnefaleikakappi sjálfur og virkur krakkfíkill, en hefur verið þjálfari bróður síns til margra ára. Dramatískt fjölskyldulíf og léleg sjálfsmynd hafa sett mark sitt á Micky, sem hefur tapað mörgum bardögum í röð og stendur nú á krossgötum. Hann þarf að velja milli þess að halda tryggð við fjölskylduna eða reyna að endurheimta feril sinn og sjálfsvirðinguna upp á eigin spýtur. Mikið hefur verið rætt um frammistöðu Christians Bale í myndinni en hún þykir með afbrigðum góð. Ég er sammála því og það er hreint út sagt stórkostlegt að fylgjast með honum. Hann daðrar við ofleikinn að vísu, en ofleikurinn er af þeirri gerðinni að vera réttlætanlegur. Líkt og Pacino sem Tony Montana eða Nicholson sem Jókerinn. Bale er fyndinn og sorglegur á víxl, en umfram allt er hann nærri óþekkjanlegur. Aðrir leikarar skila einnig sínu. Marky Mark er Marky Mark, mamman er æðisleg og systurnar sjö ættu að fá sérstök verðlaun sem ein persóna. Þær eru allar eins, og þær eru allar jafn hræðilegar. Satt best að segja skelfdu þær mig meira en svínaflensan og öreindahraðallinn í CERN gerðu til samans. Þrátt fyrir alvarleika sögunnar er The Fighter bráðfyndin mynd. Það skrifast að mestu á leikstjórn Davids O. Russell. Á meðan dramatísk atriði eru á köflum klúðursleg er bætt upp fyrir það með spennandi slagsmálasenum, meinfyndnum samtölum og jafnvel slapstick-húmor. Hafa ber í huga að myndin er sannsöguleg en þó er líklegt að höfundarnir hafi tekið sér vel útilátið skáldaleyfi. Það er þó skoðun undirritaðs að The Fighter sé hampað meira en hún á skilið. Skemmtanagildið er til staðar en dýptina vantar. Aðalpersónan er ekki nógu spennandi og framvinda sögunnar kemur aldrei á óvart. Niðurstaða: Miðlungs saga, frábærir leikarar og sniðugur leikstjóri. Já, og Marky Mark.
Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Lífið Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Lífið Fleiri fréttir Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Sjá meira