Hugboð um vandræði
Megas og Senuþjófarnir
Megas hefur unnið með mörgum flottum hljómsveitum í gegnum tíðina. Hljómsveitirnar Júdas, Spilverk þjóðanna, Nýdönsk, Íkarus og Hættuleg hljómsveit eru bara nokkrar þeirra. Samstarfið hefur þó sjaldnast enst lengi, sem er neikvætt (það hefði verið gaman að fá framhald af Á bleikum náttkjólum eða Millilendingu!) en líka jákvætt vegna þess að þessar tíðu breytingar hafa orðið til þess að ferill Megasar er mjög fjölbreyttur tónlistarlega.
Undantekningin frá reglunni er Senuþjófarnir, sem í grunninn er hljómsveitin Hjálmar. Hugboð um vandræði er fimmta platan sem Megas gerir með þeim á fjórum árum og efni á sjöttu plötuna er víst langt komið. Það hljóp að vísu snurða á þráðinn í samstarfinu í árslok 2009, en menn féllust í faðma á nýjan leik fyrir stuttu og skelltu sér beint í hljóðver og tóku upp fullt af lögum. Sautján þeirra eru á Hugboð um vandræði.

Það er tvennt óvenjulegt við Hugboð um vandræði. Í fyrsta lagi er eitt laganna á ensku, Virgo Beatissima. Það mun vera annað lagið á ensku sem kemur út á plötu með Megasi. Það fyrra var á kvikmyndaplötunni Fálkar. Ágæt tilraun, en íslenska er klárlega mál Megasar. Í öðru lagi eru fjórir textanna á plötunni eftir Þorvald Þorsteinsson, úr leikritinu Lífið – notkunarreglur. Þeir passa ágætlega inn í heildina.
Hugboð um vandræði er fyrirtaks Megasarplata. Hún er ekki alveg jafn sterk og meistaraverkið Frágangur, en hún er litlu síðri. Í textunum er komið víða við. Kúkur í flagi og Kúkur sjúgandi ramma plötuna inn og svo vísar Megas út og suður að vanda, meðal annars í sjálfan sig í laginu Ekkert er andstyggilegra, sem er eitt af bestu plötunnar. Það er líka gaman að fá íslenska honkítonkið 17. júní (hann á afmæli í dag) loksins á plötu. Á heildina litið er Hugboð um vandræði flott plata sem sýnir að Megas fellur að Senuþjófunum eins og flís við rass.
Niðurstaða: Enn ein gæðaplatan frá Megasi og Senuþjófunum.