Morðingi rændi fórnarlömbin 20. apríl 2011 00:45 Leikur enn lausum hala Lögreglunni á Fjóni hefur orðið lítið ágengt í rannsókn sinni á morðinu við Óðinsvé í síðustu viku. NordicPhotos/AFP
Lögreglan á Fjóni hefur nú lýst eftir manni í tengslum við morðið á hjónum í Óðinsvéum síðastliðið miðvikudagskvöld. Nú er talið að sá sem skaut hjónin til bana á gönguferð í skóglendi í nágrenni borgarinnar, hafi haft á brott með sér ýmsa muni sem þau höfðu á sér, svo sem myndavél, veski og lyklakippu. Hann skildi þó eftir skartgripi og farsíma hjónanna, sem varð til þess að lögregla taldi í upphafi rannsóknar ólíklegt að um ránmorð hefði verið að ræða. Eftir upplýsingar frá vitnum er nú lýst eftir þéttvöxnum manni á fimmtugsaldri sem sást í nágrenni við morðstaðinn. Að sögn blaðsins B.T. telur lögregla nú nær útilokað annað en að morðinginn hafi haft ástæðu fyrir verknaðinum, enda voru hin látnu skotin að minnsta kosti 18 skotum. Því gengur rannsóknin út frá því að annað hjónanna hið minnsta hafi þekkt til árásarmannsins eða -mannanna. Fram til þessa hefur lögreglan lýst eftir tveimur öðrum mönnum, sem voru eins konar einbúar í skóglendinu þar sem illverkið var framið, en þeir eru ekki taldir tengjast málinu. - þj
Fréttir Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Áfall fyrir bæjarfélagið Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Sjá meira