The Vaccines hætt við Airwaves 1. september 2011 08:00 Breska rokksveitin The Vaccines er hætt við að koma fram á Airwaves-hátíðinni.
vonbrigði Kamilla Ingibergsdóttir var mjög spennt fyrir The Vaccines. „Þetta er auðvitað mjög leiðinlegt,“ segir Kamilla Ingibergsdóttir hjá Iceland Airwaves. Breska rokksveitin The Vaccines, með Íslendinginn Árna Hjörvar Árnason á bassanum, er hætt við að koma fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sem fer fram í Reykjavík í október. Ástæðan er hálsaðgerð sem söngvarinn Justin Young þarf að gangast undir, sú þriðja á þessu ári. Fyrir vikið hefur sveitin aflýst fyrirhuguðum tónleikum sínum víða um heim í september og fram til 26. október, skömmu eftir að Airwaves-hátíðinni lýkur. Tónleikar The Vaccines áttu að vera einn af hápunktum Airwaves og því eru þetta mikil vonbrigði fyrir þá sem hafa þegar keypt sér miða. „Við vorum mjög spennt fyrir því að fá The Vaccines hingað en þetta er eitthvað sem var alls ekki hægt að koma í veg fyrir. Þeir eru að aflýsa risastórum túr og því hræðilegt fyrir þá líka, enda eru þeir að byrja ferilinn sinn,“ segir Kamilla. Til stendur að finna góðan staðgengil fyrir The Vaccines og er sú vinna í fullum gangi. „Við getum huggað fólk með því að það eru tvö hundruð önnur atriði í boði. Ég hugsa að það verði enginn ósáttur á Airwaves.“ Á meðal erlendra flytjenda á hátíðinni verða Sinéad O" Connor, Beach House, John Grant og Yoko Ono Plastic Ono Band. - fb
Lífið Mest lesið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Fleiri fréttir Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira