Mótmælendur höfðu betur 28. september 2011 00:30 Evo Morales Forseti Bólivíu segist harma hversu mikil harka hefur færst í mótmælin.nordicphotos/AFP
Evo Morales, forseti Bólivíu, ákvað á mánudag að fresta framkvæmdum við þjóðveg sem leggja átti þvert yfir þjóðgarð og sjálfstjórnarsvæði frumbyggja. Fjölmenn mótmæli hafa verið gegn þessari fyrirhuguðu vegagerð síðan um miðjan ágúst. Til átaka hefur komið milli mótmælenda og lögreglu, en á sunnudag og mánudag hljóp mikil harka í þau átök. Á sunnudag ákvað lögreglan að stöðva mótmælasamkomu og handtók fjölmarga mótmælendur. Á mánudag lokuðu mótmælendur síðan bæði vegum og flugvelli til að koma í veg fyrir að lögreglan færi með fanga burt af svæðinu. Lögreglan ákvað þá að láta hundruð handtekinna mótmælenda lausa. Fáeinum klukkustundum síðar kom tilkynningin frá Morales forseta um að framkvæmdum yrði frestað. Hann sagðist jafnframt ekki hafa átt neinn hlut að ákvörðun lögreglunnar um að leysa upp mótmælin á mánudag og harmaði hvaða stefnu málið hafði tekið. Vegurinn átti að auðvelda samgöngur milli tveggja mikilvægra svæða í landinu, í von um að það verði til að styrkja efnahagslíf landsins.- gb
Fréttir Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Sjá meira