Unaðsstundin lengd Sigga Dögg skrifar 30. október 2011 16:00 Mig langaði til að spyrja þig út í endingu karlmanna í rúminu. Kærastinn minn og ég stundum frábært kynlíf en vandamálið er að hann endist mjög stutt í samförum. Í staðinn höfum við oft langan forleik en það þýðir yfirleitt að hann er orðinn mjög spenntur þegar kemur að samförum. Getur þú gefið einhver ráð um að auka endinguna? SVAR: Í fyrsta lagi þarf að skoða hvað þú meinar með „mjög stutt“ þar sem slíkt mat er mjög huglægt og því einstaklingsbundið. Finnst kærasta þínum þetta vera vandamál? Viljið þið bæði lengja tímann í samförum þá er möguleg lausn að hann fái fullnægingu áður en samfarir hefjast. Hann gæti þá sinnt þér á meðan hann jafnar sig eftir sína fullnægingu og ætti þá vonandi að vera til í samfarir aftur þegar þú ert það. Hann er þá vonandi minna spenntur og ætti að endast lengur. Svo má auðvitað stunda samfarir oftar en einu sinni í hvert skipti. Þá má einnig prufa rofnar samfarir en það krefst þess að hann dragi liminn út þegar honum finnst hann vera nálægt fullnægingu og „hvíla“ hann í stutta stund eða þar til hann treystir sér aftur til samfara. Þetta er ákveðin þjálfun sem krefst æfingar svo það ætti ekki að skemma fyrir. Þú getur fundið nánari leiðbeiningar í kynlífshandbókum.Erfitt að tjá sig um kynlífiðÞú talar oft um að lykillinn að góðu kynlífi sé að geta talað saman. Áttu til ráð fyrir konur sem eiga einfaldlega mjög erfitt með að tjá sig um slíkt? Ég og kærasti minn höfum verið saman í nokkur góð ár og ég aldrei sagt neitt (og jafnvel gert mér upp fullnægingu) og mér finnst erfitt að eiga að fara að tjá mig núna. Bæði af því ég er tepra og af því ég er hrædd um að hann komist þá að sannleikanum – að ég hafi aldrei fengið það með honum. SVAR: Byrjum á einu, þú ert ekki tepra því það er asnalegt orð sem á ekki heima í samræðum um kynlíf. Ekki stimpla þig sem slíka og þar með nota það sem afsökun fyrir tjáningarleysi og sjálfsfróunarleti. Ef þú getur gert þér upp fullnægingu og stunið með trúverðugleika þá getur þú tala við kærasta þinn. Er málið ekki frekar það að þú þekkir sjálfa þig ekki nægjanlega vel til að biðja kærasta þinn um að fullnægja þér? Ef þú veist hvað þér þykir gott þá er um að gera að biðja um það beint. Þú getur sleppt öllum orðum og sýnt honum það næst þegar þið stundið kynlíf. Það er miklu meira vesen að gera sér upp stunur og leggangavætu en að stýra hendi og höfði á ákveðna staði. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sigga Dögg Mest lesið Seðlabankastjóri rannsakar sjálfan sig Einar Steingrímsson Skoðun Er ég eins og ég er? - Svar við pistli heilbrigðisráðherra Eldur Smári Kristinsson Skoðun Skuggaráðherra ríkisstjórnarinnar Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Setjum á okkur súrefnisgrímuna áður en við björgum heiminum. Nú þarf hinn þögli meirihluti að láta í sér heyra Steindór Þórarinsson Skoðun Stóra spurningin sem fjárlögin svara ekki Sandra B. Franks Skoðun 30 by 30 - Gefum lífi á jörð smá séns Rósa Líf Darradóttir Skoðun Um ópið sem heimurinn ekki heyrir Reham Khaled Skoðun Skólabærinn Garðabær: Við mælum árangur og gerum stöðugt betur Almar Guðmundsson,Sigríður Hulda Jónsdóttir Skoðun Talaðu núna, talaðu! Bolli Pétur Bollason Skoðun Óttinn selur Davíð Bergmann Skoðun
Setjum á okkur súrefnisgrímuna áður en við björgum heiminum. Nú þarf hinn þögli meirihluti að láta í sér heyra Steindór Þórarinsson Skoðun
Skólabærinn Garðabær: Við mælum árangur og gerum stöðugt betur Almar Guðmundsson,Sigríður Hulda Jónsdóttir Skoðun
Setjum á okkur súrefnisgrímuna áður en við björgum heiminum. Nú þarf hinn þögli meirihluti að láta í sér heyra Steindór Þórarinsson Skoðun
Skólabærinn Garðabær: Við mælum árangur og gerum stöðugt betur Almar Guðmundsson,Sigríður Hulda Jónsdóttir Skoðun