Dauðadæmt ský nálgast svarthol 15. desember 2011 05:30 Engin undankomuleið Þessi tölvumynd sýnir afleiðingar þess að gasskýið leysist upp í návígi við svartholið. Rauða línan sýnir braut skýsins. Mynd/ESO
Stjörnufræðingar hafa gert merkilega uppgötvun þar sem risastjörnukíkir evrópsku Geimvísindastofnunarinnar (ESO) hefur varpað ljósi á stórt gasský sem er nokkru massameira en jörðin, og nálgast óðfluga risasvartholið í miðju Vetrarbrautarinnar. Á vef ESO segir að þetta sé í fyrsta sinn sem „dauðadæmt“ gasský nálgast svarthol að jarðarbúum sjáandi, en þýskir vísindamenn hafa notað sjónauka ESO til að fylgjast með svartholinu í 20 ár. Skýið sem um ræðir fer nú á átta milljón kílómetra hraða á klukkustund í átt að svartholinu og eykur stöðugt hraðann. Skýið verður komið fast upp að svartholinu árið 2013, en þegar er þyngdarafl svartholsins farið að tæta í brúnir skýsins og er talið að það muni leysast algerlega upp á næstu árum. „Margir kannast við hugmyndina um geimfara sem verður að spaghettíi er hann nálgast svarthol,“ segir Stefan Gillessen, aðalhöfundur fræðigreinar um þessa atburðarás, á vef ESO. „Í dag sjáum við það gerast í raunveruleikanum. Þetta nýfundna ský mun ekki komast heilu og höldnu í gegnum þessa raun.“ - þj
Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira