Tónlist

Ólöf Arnalds og Skúli á sólstöðutónleikum

Hélt sumarsólstöðutónleika í Grasagarðinum í júní og endurtekur nú leikinn á vetrarsólstöðum.
Hélt sumarsólstöðutónleika í Grasagarðinum í júní og endurtekur nú leikinn á vetrarsólstöðum. Fréttablaðið/Vilhelm
Ólöf Arnalds heldur sína aðra sólstöðutónleika á árinu á Café Flóru í Grasagarðinum í Laugardal í kvöld ásamt Skúla Sverrissyni. Ólöf hélt vel heppnaða sumarsólstöðutónleika í Grasagarðinum í júní og snýr nú aftur til leiks á vetrarsólstöðum.

Á tónleikunum flytur Ólöf efni af nýrri smáskífu, „Ólöf Sings" sem kom út í nóvember, sem og lög af nýrri plötu sem væntanleg er á nýju ári, auk eldra efnis í bland.

Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson, bassaleikari og tónskáld, hafa verið nánir samverkamenn um hríð. Skúli stýrir upptökum á nýrri plötu Ólafar, sem er væntanleg með vorinu en hann kom líka að gerð fyrri breiðskífa Ólafar, Við og við og Innundir skinni.

Þá vann Ólöf með Skúla á plötu hans, Seríu I, sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2006 í flokki sígildrar og samtímatónlistar, sem og Seríu II, sem kom út í fyrra.

Skúli Sverrisson stýrir upptökum á nýrri plötu Ólafar.
Skúli og Ólöf leiddu síðast saman hesta sína á Opnunartónleikum Listahátíðar í Reykjavík fyrr á þessu ári.

Tónleikarnir á Café Flóru í kvöld hefjast klukkan 21 en húsið opnar klukkan 20. Miðaverð er 2.500 krónur og eru miðar seldir í forsölu á midi.is og í Smekkleysubúðinni á Laugavegi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×