Stjórnarmaður hjá Fram: Svipað mál kom upp 2009 Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. febrúar 2011 14:15 Anton Rúnarsson, leikmaður Vals, fagnar í leiknum um helgina.
Stjórn handknattleiksdeildar Fram hefur ákveðið að fylgja eftir kæru sinni á Val vegna leik liðanna í undanúrslitum Eimskipsbikarkeppni karla um helgina. Eins og fram hefur komið telur Fram að Markús Máni Michaelsson hafi ekki verið með leyfi til að spila leikinn með Val. Forráðamenn handknattleiksdeildar Vals fullyrða að staðið hafi verið skil á öllum pappírsmálum í tæka tíð og að það hefði HSÍ staðfest. Eftir fund hjá stjórn Fram í dag var ákveðið að halda áfram með málið. „Við teljum okkur vera með sterk rök og í raun skothelt mál. Við ætlum að fylgja því eftir," sagði Reynir Stefánsson, varaformaður stjórnar handknattleikdsdeildar Fram, í samtali við Vísi. Hann vildi ekki svara staðhæfingum forráðamanna Vals að málið sé tilkomið vegna misskilnings. „Ég get ekki farið út í nein smáatriði þar sem að Valur á enn eftir að skila inn sinni greinagerð." „En það er ágætt að rifja það upp að svipað mál kom upp í deildarbikar kvenna árið 2009. Þá var Haukum dæmdur 10-0 sigur gegn Val sem hafði teflt fram ólöglegum leikmanni. Það er sama stjórn hjá Val sem er að gera þetta aftur nú." „Við treystum dómstólum fyrir þessu máli."
Íslenski handboltinn Mest lesið Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Sterkir íslenskir hlauparar á EM í utanvegahlaupum Sport Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Fótbolti Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Fleiri fréttir Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Sjá meira