Tvö lið kynnt undir merkjum Lotus og deilt un notkun á nafninu 31. janúar 2011 12:48 Robert Kubica og Vitaly Petrov afhjúpa Lotus Renault GP bílinn á Spáni í dag. Mynd: Getty Images
Lotus Renault GP liðið frumsýndi 2011 bíl sinn formlega á Spáni í dag, á Ricardo Tormo brautinni, en liðið hét áður Renault og ökumenn liðsins eru Robert Kubica frá Póllandi og Vitaly Petrov frá Rússlandi. Sömu ökumenn og óku með Renault í fyrra, en nýja liðið er staðsett í Enstone í Bretlandi eins og Renault í fyrra. Annað lið sem notaði Lotus nafnið í fyrra frumkynnti einnig bíl sinn í morgun, en það er Team Lotus, sem er staðsett í Norfolk í Bretlandi og er dómsmál í gangi, þar sem Team Lotus og Lotus Renault GP takast á um notkun á Lotus nafninu í ár. Ekki er ljóst hvort öll kurl verða kominn til grafar fyrir fyrsta mót ársins í mars. Ökumenn Team Lotus eru Heikki Kovalainen og Jarno Trulli. "Fyrir Genii Capital og Lotus Renault GP þá verður 2011 tímabilið árið sem við ætlum að ná markmiðum okkar. Núna eigum við liðið 100% og munum eftir sem áður tækla hlutina og með auðmýkt. Ég vil bjóða Lotus bílaframleiðandann velkominn", sagði Gerard Lopez hjá Lotus Renault GP, en fyrirtæki hans Genii Captial samdi við Lotus bílaframleiðandann um samvinnu vetur og nafni Renault liðsins fyrrverandi var breytt í Lotus Renault GP.
Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Körfubolti Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Ellefu ára strákur verður óvænt hluti af setningarhátíð Ólympíuleikanna Sport Sara var lengi lásskjámynd Eyglóar en nú er Eygló á símanum hjá Söru Sport Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira