Viðskipti erlent

Real Madrid er áfram auðugasta fótboltalið heimsins

Spænska úrvalsdeildarliðið Real Madrid heldur stöðu sinni sem auðugasta fótboltalið heimsins, sjöunda árið í röð.

Deloitte gefur út árlega lista yfir auðugustu fótboltalið heimins. Tekjur Real Madrid námu 401 milljón evra á síðasta ári eða um 65 milljörðum króna.

Næst á eftir Real Madrid kemur Barcelona en í þriðja sæti listans er enska úrvalsdeildarliðið Manchester United. Í næstu sætum þar á eftir eru svo Bayern Munich, Arsenal og Chelsea. Röðin á sex efstu sætunum er nákvæmlega sú sama og í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×